1704704009

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 26 til 50 (af 154)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Háfjallavísindi #51260
    1704704009
    Meðlimur

    Einfalt ráð: Klæða sig að neðan.

    in reply to: Steve House #51248
    1704704009
    Meðlimur

    -Steve var skrambi góður gestur. Himmi var startarinn í málinu og því ástæða til að þakka honum fremur en fráfarandi stjórn fyrir frumkvæðið. Rétt að halda því til haga.

    in reply to: Turninn #51203
    1704704009
    Meðlimur

    Það er hægt að nálgast lykla að turninum hjá undirrituðum:

    Ágúst Þór Gunnlaugsson: 6953310
    Guðmundur F Jónsson: 6912580
    Örlygur Steinn: 8214481

    in reply to: Ný stjórn #51138
    1704704009
    Meðlimur

    Sorrí Vilborg mín. Enn eina ferðina gleymdi ég að logga mig inn á réttu nafni…

    in reply to: Utankjörstaðaathvæði!!!! #51110
    1704704009
    Meðlimur

    …og lagabreytingar eiga að berast uppstillinganefnd fyrir 10. janúar og skal nefndin kynna þær breytingartillögur í fundarboði fyrir aðalfund…

    …uppstillinganefnd hefur ekki verið til í klúbbnum í áraraðir. Framboðs- og kosningagleði er bara að springa svo rækilega út þessi dægrin að þetta kemur öllum í opna skjöldu. Mjög jákvætt allt saman og frábærar umræður. En ekki veit ég svarið, frekar en aðrir, en finnst auðvitað svona helvíti gaman að taka þátt í umræðunum. Veit þó að ég er eldri en 16 ára :)

    in reply to: Greitt árgjald = gilt atkvæði #51096
    1704704009
    Meðlimur

    Hvers vegna að bíða til 2008? Það þyrfti helst að ganga þannig frá málum að utankjörfundaatkvæði yrðu tekin með í reikninginn strax á þessum aðalfundi, þar sem nær öll stjórnin verður kosinn til tveggja ára og því ekki nema kosið um þrjú stjórnarsæti 2008.

    Það er síðan spurning með framkvæmdina:
    -Að einhver mæti með skriflegt umboð utankjörfundarkjósanda og leggi fram atkvæðið.

    -Að kjósandi er sendi tölvupóst á info@isalp.is með atkvæði sínu sem lögð verði til samþykkis aðalfundar.

    Ef einhverjum þykir þetta frjálslega með farið, eða glannalegt, þá bendi ég á að félagar í Ísalp eru ekki sá þjóðflokkur sem stundar eitthvað svindl sér til skemmtunar.

    Ég er mjög fylgjandi því að hleypa utankjörinu að strax. En þessu ræður Aðalfundurinn. Gagnlegt væri að heyra sjónarmið fleiri félaga á umræðusíðunum.

    in reply to: Anna María, Íslenska, dýrafræði og kostningar #51089
    1704704009
    Meðlimur

    Það munu vera hátt í hundrað konur í þessum tæpum 500 manna klúbbi. Ég tek hjartanlega undir með þér Kalli varðandi framboðin. Ég hvet enn og aftur konur í klúbbnum til að stökkva fram og lýsa yfir framboði. Það er nægur tími enn.

    in reply to: Stjórn ÍSALP #51073
    1704704009
    Meðlimur

    Úr því að minnst er á utankjörfundaratkvæði, má taka það fram að þetta er í annað sinn á jafnmörgum dögum sem hugmynd berst um slíkt. Það er hins vegar ekkert um utankjörfundaratkvæði að finna í lögum Ísalp. Aðalfundurinn er eini vettvangurinn þar sem leiða mætti svona til lykta – þ.e. leyfa utankjörfundaratkvæði eður ei.
    En eitt praktískt atriði að lokum, sem rétt er að taka fram; lög félagsins leyfa bara þeim sem hafa borgað árgjaldið að bjóða sig fram og sama gildir um þá sem vilja kjósa á aðalfundinum. Semsagt ekki gleyma að borga árgjaldið.

    in reply to: Stjórn ÍSALP #51069
    1704704009
    Meðlimur

    Eftir smákönnun á ástandinu mun þetta á borðinu:
    -Þorvaldur var kosinn 2002 (skv. fundargerð aðalfundar 2006)og hefur tvívegis fengið setuna endurnýjaða, síðast árið 2006 og situr því til 2008. NEMA hann hafi verið kjörinn til eins árs í það skiptið. Það veit enginn og þannig er það bara. En til að höggva á þennan andstyggilega hnút og nagandi óvissu – ekki síst í ljósi þeirrar kosningakátínu sem Þorvaldur er haldinn – er eðlilegt að líta við svo á sæti hans sé laust og þar með er niðurstaðan og hana nú:

    -Samningar lausir á öllum sætunum sjö
    -Alls eru níu framboð:

    Ágúst
    Freyr
    Henrý
    Skarphéðinn
    Smári
    Sveinborg
    Viðar
    Þorvaldur
    Örlygur

    in reply to: Stjórn ÍSALP #51067
    1704704009
    Meðlimur

    Tölvupósturinn var sendur af undirrituðum eins og að var stefnt og tilkynnt áður. Engin er uppstillinganefndin til að annast þessi mál eins og reglur gera ráð fyrir. En fyrr hafði ég ekki þrýst á „send“ hnappinn um framboðin í umræddum tölvupósti en nýtt framboð Sveinborgar var tilkynnt hér. Það má draga þá ályktun að fleiri framboð muni berast allt fram á síðasta dag og líklega vert að láta bara svona tölvupósta eiga sig.
    Og nafn Viðars Helgasonar átti auðvitað að vera í umræddum tölvupósti. Allir hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á því.

    Nokkuð ljóst að þörf verður á að kjósa uppstillinganefnd á aðalfundi sem annast þessi framboðsmál.

    in reply to: Gisting á ísfestivali #51083
    1704704009
    Meðlimur

    Neinei þetta reddast allt.

    in reply to: Stjórn ÍSALP #51061
    1704704009
    Meðlimur

    Bitist um allar stöður. Naumast lætin. Þetta er fremur fáheyrt – en jafnframt frábært fyrir okkar ágæta klúbb.

    Gaman væri líka að sjá framboð af hálfu kvenna á þessum vettvangi. Strákar hafa tekið vel við sér, augljóst er það. En allt er galopið. Það er ástæða til að hvetja konur líka til að tilkynna framboð. Til stjórnar. Til formennsku. Til nefndarstarfa.
    -Sjáumst á aðalfundi.

    in reply to: Stjórn ÍSALP #51054
    1704704009
    Meðlimur

    Góður punktur. Reyndar hafði ég tilkynnt í einni fréttinni fyrr í vetur að ég hefði hug á áframhaldandi formennsku, þannig að afstaðan er skýr hvað mig snertir. Svo er það í höndum Aðalfundar hvort klúbburinn vill sama formann áfram og mótframboð eiga auðvitað að líta dagsins ljós til að gera þetta spennandi.

    Annars eru tvö ný framboð komin til almennrar stjórnarsetu en í Aðalfundarboðinu um daginn gleymdist að geta þeirra og beðist er velvirðingar á því lögbroti.

    En varðandi sitjandi stjórnarfólk, þá væri ágætt að spinna þráð um það hér. Stefán hyggst fá lausn, og Ágúst Þór sömuleiðis. Viðar hyggst bjóða sig fram til lengri setu. Olli, Annarmaría og Magnús gætu skotið hér inn lokasvari sínu. Síðan að taka allt saman og senda þessar upplýsingar með ítrekunarfundarboði.

    in reply to: Ísfestival í norð #51034
    1704704009
    Meðlimur

    Sjálfsagt er fólk lengi að ákveða sig. Hlákan eykur manni leti í þessum efnum. En útlitið er hreint ekki slæmt, allnokkur ís búinn að vera fyrir norðan og langur frostakafli framundan.

    in reply to: Ísfestival í norð #51031
    1704704009
    Meðlimur

    Accomodation will be arranged at low price. Most likely folks will stay at the same place. Camping is maybe not the no. 1 choice for this occation.
    Why don´t you use Davids tools? I still keep it. Give him a phonecall.

    in reply to: Gullna reglan #50999
    1704704009
    Meðlimur
    in reply to: snjóflóð og hættulegar mítur! #50966
    1704704009
    Meðlimur

    Maður ætti víst að þegja. Með umræddum sleðahávaða var víst átt við akstur og þar liggur villan sem verður leiðrétt.

    in reply to: snjóflóð og hættulegar mítur! #50962
    1704704009
    Meðlimur

    Varðandi blaðafréttina gerir maður ráð fyrir því að einhver heimildarmaður blaðamanns á vettvangi hafi komið þessum upplýsingum á framfæri. Ef rétt er að þetta er svona mikið rugl, þá er það ábyrgðarhluti hjá viðkomanda að láta svona frá sér fara. Voru ekki eintómir sérfræðingar á vettvangi? Eru þeir fangar mýtunnar?
    Varðandi fræðsluþátt Ísalp er því til að svara að síðla næsta mánaðar verður helgarnámskeið í vetrarfjallamennsku þar sem einmitt verður farið í þessa hluti. s.s. notkun snjóflóðaýla og -stanga og kennt í leiðarval með tilliti til snjóflóðahættu

    Batakveðjur til hins slasaða.

    in reply to: Loksins ástæða til að fara í sund #50956
    1704704009
    Meðlimur

    Aldeilis sem Grafarfossinn hefur fengið heimsóknirnar. Er þetta orðið eins á níunda áratug síðustu aldar þegar „biðröð“ var í fossinn helgi eftir helgi, skv. lýsingum fyrri tíðar. Eða er þetta rómantískt fortíðarlit sem nýtur þess að láta skafa yfir slóð minninganna? Sjálfur hóf ég klifurferil minn fyrir tveimur áratugum og sá aldrei biðröð í Grafarfossinn á miðjum níunda áratugnum.
    Þess má að lokum geta að framfarirnir hjá manni hafa vægast sagt verið rólegar á þessum 20 árum. En iss það gerir ekkert til. Það er alltaf jafn yndislega gaman að velja sér léttari klifurleiðir við hæfi og sötra síðan te á vettvangi í góðum félagsskap.

    in reply to: Gufunesturninn #50924
    1704704009
    Meðlimur

    Þeir sem geyma lykla Ísalp að turninum auk mín eru:

    Ágúst Þór Gunnlaugsson: 6953310
    Guðmundur F Jónsson: 6912580

    Ofanritaðir verða í turninum meira eða minna í allt kvöld miðvikudagskvöld þannig að það er nóg að mæta á svæðið og allt verður opið og fljóðlýst. Góða skemmtun.

    in reply to: Gufunesturninn #50922
    1704704009
    Meðlimur

    Ísalp var að fá lykla að turninum og sá sem vill klifra þarf einungis að sækja lykil til undirritaðs. Lyklasíminn er opinn,. 8214481 ef einhver vill byrja strax í kvöld.
    ÖS.

    Í turninum eru ljóskastarar sem þarf að setja í samband (skýrir sig sjálft á vettangi)

    Hægri leiðin (séð neðan frá) er víst ekki enn orðin nógu góð en sú vinstri er fín og til í tuskið.

    in reply to: Var að berast – toppísklifrarar á leiðinni #50908
    1704704009
    Meðlimur

    Ég er að ganga frá svari til þeirra. Vonandi verður bara ekki allt komið í volga migu þegar þau mæta. Þau fara þá bara Golden hringinn.

    in reply to: Púður og snjóflóðahætta #50905
    1704704009
    Meðlimur

    Það verður ekki annað sagt en nokkurs feginleika gæti með útkomuna í Ísalpferðinni í gær. Snjóflóðahætta var víðsfjarri í Grafarfossi og Granna en um helgina voru að berast fréttir af snjóflóðum norðanlands og vestan – að ógleymdri Esjunni fyrir viku. (frétti af björgunarsveitamönnum í Þverfellshorni á sunnudagsmorgun. Veit ekki hvernig snjóalögum þeir mættu þar efra)

    Það er að sjálfsögðu ekki óskastaða að vera hringla með dagskrá klúbbsins og láta yfirvofandi snjóflóðahættu hrekja sig úr einu horni í annað með tilheyrandi röskun fyrir þátttakendur. En spjallskrifarar hér á síðunni tóku vel við sér og miðluðu mikilvægum upplýsingum og þar sannaði sig vel þetta verkfæri sem vefurinn er.

    Þátttakan í ferðinni var líka frábær og allir komu heilir heim. Það er ekki svo lítils virði fyrir svona klúbb. Vil þakka fyrir góðan dag og að sjálfsögðu góðar umræður í aðdragandanum.

    in reply to: Ísklifrið á sunnudag #50894
    1704704009
    Meðlimur

    Villingadalurinn er út úr myndinni á sunnudag. Talaði við veðurstofuna og niðurstaðan er sú að Villingadalsferð færi að snúast upp í óþarfa áhættu. Mér finnst engan veginn forsvaranlegt að standa í slíku í skipulagðri Ísalpferð.

    Þess í stað kemur plan c: Grafarfoss og Granni. Ný auglýsing komin á dagskrársíðuna.

    in reply to: Ísklifrið á sunnudag #50892
    1704704009
    Meðlimur

    Það fýkur í skjólin flest. Snjósöfnunin heldur áfram annaðvköld með feykilegri ofankomu. Er í sambandi við Veðurstofuna varðandi snjóflóðahættu til fjalla. Hef takmarkaðan áhuga á að lenda í snjóflóðum og pósta út nýjum fréttum með góðum fyrirvara.

25 umræða - 26 til 50 (af 154)