Gufunesturninn

Home Forums Umræður Almennt Gufunesturninn

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45592
    Gummi St
    Participant

    Ég skoðaði hann í gær og hann var alveg í blússandi aðstæðum til æfinga m. toppakkeri…

    það væri snilld að fá að koma þarna eftir langan dag á skrifstofunni til að teygja aðeins úr sér, hvað segið þið umsjónarmenn um það?

    kv. Gummi St.

    #50919
    Anonymous
    Inactive

    Frábært framtak og hið besta mál
    Olli

    #50920
    Stefán Örn
    Participant

    Tek undir það – hann virðist vera nógu þykkur til að þola talsverða umferð.

    Vonandi verður hann “opnaður” á næstunni.

    Brilliant framtak.

    Steppo

    #50921
    0703784699
    Member

    Hvenær er hraðakeppnin á dagskrá aftur?

    Gimp

    #50922
    1704704009
    Member

    Ísalp var að fá lykla að turninum og sá sem vill klifra þarf einungis að sækja lykil til undirritaðs. Lyklasíminn er opinn,. 8214481 ef einhver vill byrja strax í kvöld.
    ÖS.

    Í turninum eru ljóskastarar sem þarf að setja í samband (skýrir sig sjálft á vettangi)

    Hægri leiðin (séð neðan frá) er víst ekki enn orðin nógu góð en sú vinstri er fín og til í tuskið.

    #50923
    Gummi St
    Participant

    flott mál, væri til í að kíkja annað kvöld (miðvikudagskvöldið)

    kv. Gummi St.

    #50924
    1704704009
    Member

    Þeir sem geyma lykla Ísalp að turninum auk mín eru:

    Ágúst Þór Gunnlaugsson: 6953310
    Guðmundur F Jónsson: 6912580

    Ofanritaðir verða í turninum meira eða minna í allt kvöld miðvikudagskvöld þannig að það er nóg að mæta á svæðið og allt verður opið og fljóðlýst. Góða skemmtun.

    #50925
    Anonymous
    Inactive

    Mikið var gaman að berja þann bláa, landsins forna fjanda í gærkvöldi. Þau undur og stórmerki gerðust að ég prufaði tvær ferðir fetlalaus og afsannaði kenninguna um að það sé erfitt að kenna gömlum hundi…. Mér fannst þetta bara alveg þrusu gaman svona án fetla.
    Kveðja Olli

    #50926
    2401754289
    Member

    Fimmtudagskvöldið var massað! Mættum 4 til leiks og var hópur búinn að vera rétt á undan okkur…svo Skarphéðinn og Atli þegar við vorum að fara!!!
    Ísinn er mjög góður og fínn til allskyns æfinga.
    Er ekki hraðakeppni í byrjun næstu viku???

Viewing 9 posts - 1 through 9 (of 9 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.