Gisting á ísfestivali

Home Forums Umræður Almennt Gisting á ísfestivali

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45453
    1704704009
    Member

    Gistimál eru að komast á kortið á festivalinu og áfram er unnið að þeim. Taldi rétt að setja út strax það sem komið er. Þetta er líka skrifað í dagskrá festivalsins. (Þegar þessi orð eru skrifuð eru góðar aðstæður í Kaldakinn að sögn Jóns Marínós. “Stekkjastaur nær niður,” eru orð Norðanmanns og nánar verður fylgst með ís og gefin skýrsla strax.)

    Gistimöguleiki I: Björg (nokkurra mín. akstur að klifursvæðinu) Gistirými: Allt að 20 manns ef einhverjir láta sér nægja að henda sér á gólfið með tjalddýnur undir sér. Kostnaður: 1.500 kr. nóttin miðað við 20 manns.

    Gistimöguleiki II. Tjöldun utan við húsið með aðgangi að mataraðstöðu í húsinu, klósetti og kvöldvöku. Tjald er ókeypis gisting eðli málsins samkvæmt en sanngjarnt væri að tjaldbúar myndu greiða 500 kr.pr/dag fyrir aðstöðuna að því gefnu að þeir kjósi ekki að gista í húsinu þótt pláss sé. Ef einhver er í tjaldi á meðan húsið er fullt: 0 kr.

    Fleiri gistimöguleikar eru í könnun, en óvíst er enn um verð þar. Það verður til lykta leitt eftir því sem fjöldinn fer að skýrast. Þeir fyrstu 20 sem skrá sig eru með gistingu að Björgum frá og með fimmtudagskvöldinu 22. feb.

    #51080
    Gummi St
    Participant

    gott mál, vorum einmitt að velta þessu fyrir okkur í vikunni !

    við erum allavega 3 til í gistimöguleika I

    GF

    #51081
    Smári
    Participant

    Ég vil nýta mér gistimöguleika 1

    kv. Smári

    #51082
    Smári
    Participant

    Ég var að átta mig á að ég fæ mig ekki lausann úr vinnu á föstud. og mæti því ekki fyrr en á föstud.kvöld er ómögulegt að bóka gistingu frá föstud.?

    Kv. Smári

    #51083
    1704704009
    Member

    Neinei þetta reddast allt.

    #51084
    Páll Sveinsson
    Participant

    “Stekkjastaur nær niður”

    Vá… þetta gerist ekki nema á 10 ára fresti.

    Drífa sig norður. Nú er tækifærið!!!

    kv.
    Palli

    #51085
    Anonymous
    Inactive

    Ég sendi útlendingunum sem eru að koma myndir af Stekkjastaur og urðu þeir yfir sig hrifnir og get ég tilkynnt þeim þær góðu fréttir (með fyrirvara um veðurbreytingu) að Stekkjastaur nái niður. Þeir spurðu sérstaklega af því hvort leiðin væri í aðstæðum.
    Olli

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.