1504794369

Svör sem þú hefur skrifað

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Bláfjöll að opna á ný eftir …. #47871
    1504794369
    Meðlimur

    Ég er með fyrirspurn til Bassa utanbrautarkappa, ef þú lítur út fjörðinn til Grenivíkur. Hvernig eru snjóalög í þá áttina.
    Ég var þarna í ágúst síðastliðinn og sá þá nokkrar línur í kringum svínártind og þernu sem gaman væri að fara. Er nægur snjór?

    in reply to: forsíðumyndirnar næstu daga… #47865
    1504794369
    Meðlimur

    Hún Harpa tók jú myndir af stökkkeppninni, en það var svo mikið að gerast að þær eru allar hreyfðar. En ég skal athuga hvort hún vill deila þessu með fleirum.

    in reply to: Strýtusveifla og samhliðasvig. #47841
    1504794369
    Meðlimur

    Þetta var meiriháttar gaman og jafnvel að maður losi upp hælinn á svigskíðunum.

    En það er eitt sem ég var að spá í og var að vona að Akureyringarnir gætu frætt mig um það. Eftir að hafa tekið hraustlega á í matarveislunni á Lindinni var ég kominn í tjúttfíling og lagði leið mína á Kaffi Akureyri þar sem illa barinn einstaklingur gargaði í míkrafóninn þar til að enginn var eftir á dansgólfinu, ég held að hann hafi tæmt gólfið þegar hann tók sína sívinsælu syrpu með lögum eftir Hauk Morthens og Ellý Vilhjálms. Þá fór ég ásamt föruneyti á Kaffi Amor og gaf ég vel í því að staður með því nafni hlaut að skarta súlum með reglulegu millibili. Svo var ekki, en ógurlegar drunur bárust af hæðinni fyrir ofan. Í fyrstu hélt ég að þar væri þvottahús í fullum gangi og einhver hefði sett skíðaskóna í á vindingu, sá svo út undan mér diskóljósin og ákvað að líta á.
    Þegar upp var komið blasti við mér nakinn maður á dansgólfinu og kvaðst hann vera að viðra feldinn. Ég tók fljótlega eftir því að fólkið á dansgólfinu gargaði með reglulegu millibili, ég skildi það að sjálfsögðu því að nakti gaurinn var ansi ógurlegur ásýndar. Ég dró mig í hlé en kom aftur síðar og var ekki búinn að vera lengi þegar allir fóru að æpa og garga aftur og engan Ísfeld að sjá. Ekki virtist vera nein regla á garginu og ekki nein ákveðin tóntegund sem gargað var í.
    Hvað var í gangi?
    Ég hef ekki komið norður í nokkurn tíma og ekki lent í þessu áður og fór því að spá hvort þetta væri ný aðferð til að hræða aðkomumenn í burtu.

    P.s. Ég mala þessa stökkkeppni á næsta ári.

3 umræða - 1 til 3 (af 3)