- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
18. febrúar, 2004 at 09:16 #45397
0304724629MeðlimurEftir hlýindi síðustu daga er loksins farið að snjóa í logni. Í gær var lemjandi viðbjóður með tilheyrandi hlýindum. Það spáir frosti og björtu um helgina, -3 – -6 gráður og bjart á lau og sun. Þetta er bara spurning hversu mikið hangir enn uppi ef óveðrið síðustu daga.
Varðandi festivalið, þá mun ég smella nokkrum myndum þegar birtir og setja inn á vefinn seinnipartinn.rok
18. febrúar, 2004 at 09:49 #48450
1306795609MeðlimurFyrir þá sem eru orðnir mjög eirðarlausir og spenntir þá gefur sjálvirka veðurstöðin á Þverfjalli ágætis upplýsingar um stemmninguna í fjallahæð á norðanverðum Vestfjörðum. Stöðin er á fjallstoppi þannig að þannig að til að fá vind í hlíðum má margfalda með 0.57 eða beita einhverju öðru innsæi.
Hérna má svo sjá pínulitlamynd af Ísafjarðarjarlinum í Köldukinn hérna um árið. Það virðist ekki væsa um hann þarna við ysta haf.
<img src=“http://www.hi.is/~eirikgi/myndir/vetur.jpg“>
http://www.hi.is/~eirikgi/myndir/vetur.jpg18. febrúar, 2004 at 11:12 #48451
0311783479MeðlimurÞví miður þá styður umræðusíðan ekki html-tög, en það væri flott ef það væri hægt.
Ef þú lumar á fleirum myndum Eiríkur, þá væri tilvalið skella þeim inn á „þínar síður“.
-kv.
Halli18. febrúar, 2004 at 11:52 #48452
AnonymousInactiveÞað er eins gott að það verðir einhver ís þarna. Það var einn ævintýramaðurinn að labba upp i flugvél í Sydney Ástralíu í sumarverði gagngert til að mæta á íklifurfestival á Íslandi!!!!!
Hann lendir á morgun og hélt að festivalið væri í Öræfasveit og vissi ekki annað en að það væru vetraraðstæður hér.
Olli -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.