Tapaður búnaður – raunasaga

Home Umræður Umræður Klettaklifur Tapaður búnaður – raunasaga

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45664
    Siggi Tommi
    Participant

    Jæja, þetta kann að hljóma kauðalega en nú verð ég að hrauna aðeins…

    Við fórum tveir upp í Hnefa fyrr í sumar til að kanna hvernig staðan væri á gömlu ryðguðu boltahræjunum og til að skoða hversu fýsilegt væri að endurbolta grjótklumpinn (ákváðum síðar að sleppa þeirri aðgerð).
    Nújæja, við vorum heldur seinir fyrir þetta kvöldið og vorum bara rétt byrjaðir á að glugga á djásnið þegar við þurftum að rjúka heim og ætluðum að koma aftur vikuna eftir til að skoða betur. Skildum því eftir gamla línu og nokkrar tryggingar þar sem ekki var gáfulegt að treysta á ryðgaða akkerið uppfrá til að síga niður.

    Nú svo leið og beið og sökum anna í vinnu komumst við ekki aftur fyrr en seint og um síðir og hafði þá dótið verið þarna einhverjar vikur. Og viti menn, það var einhver mörður búinn að taka allt dótið okkar. Mér er svo sem skítt sama um línuna en þetta voru nokkrar hnetur og fleira auk nokkurra karabína sem ég er ekki sáttur við að einhver sé að hirða frá mér.

    Þar sem ekki er alveg gefins að brölta niður að akkerinu og hreinsa þetta þá ályktum við að þetta hafi verið einhver klifurvanur og er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að skila þessu til mín.
    Fundarlaun: einn kaldur öllari á pöbb fyrir heiðarleikann.

    PS Ef sá sem tók þetta hefur ályktað sem svo að þetta hafi verið skilið eftir í „beili“ þá er það álíka gáfulegt og að ég sigi niður í Vítisbjöllur og tæki allar karabínurnar þar og vinnulínuna úr leiðinni við hliðina í sömu ferð.

    Með von um að einhver kannist við málið og hjálpi til við að finna góssið mitt.
    Takk fyrir!

    #49922
    Sissi
    Moderator

    Það er rétt Siggi, ekki gefast upp fyrr en í fullan HNEFANN ;)

    #49923
    2003793739
    Meðlimur

    Þetta er nú skítt og ekki í fyrsta skipti sem svona gerist.

    Öllara kveðja frá DK.

    Halli

    #49924
    Siggi Tommi
    Participant

    Ef viðkomandi er ragur við að gefa sig fram hér á síðunni þá er annað hvort hægt að hafa samband við mig á sigurdurth@simi.is eða skilja þetta eftir með smá upplýsingum á miða í afgreiðslu klifurhússins.
    Takk fyrir!

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.