SKÍÐAKORT einstakt tækifæri

Home Umræður Umræður Skíði og bretti SKÍÐAKORT einstakt tækifæri

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47236
    1709703309
    Meðlimur

    Nú er allt að verða vitlaust í Bláfjöllum og sennilega verður opnað á morgun, miðvikudaginn 29. jan. Ef þú vilt fjárfesta í árskorti þá er það enn hægt í Klifurhúsinu, kortið kostar kr. 8.000 og nauðsynlegt er að hafa passamynd með. Núna eru 10 manns búnir að ganga frá þessu en til þess að þetta verð gildi þurfum við að ná öðrum 10.

    Nú er að hrökkva eða stökkva. Næst gæti það verið of seint.

    Kv.
    Stebbi

    #47680
    0412805069
    Meðlimur

    Gildir kortið ekki á öll skíðasvæði Stór-Hafnarfjarðarsvæðisins???

    #47681
    1709703309
    Meðlimur

    Þetta er því miður búið. Átti að renna út 31. des.

    Einungis þeir 10, sem voru búnir að skrá sig fengu að nýta sér þetta.

    Fór með listann í morgun.

    En jú kortið kemur til með að gilda á öll skíðasvæðin á Höfuðborgarsvæðinu.

    Kv.
    Stefán

    #47682
    0704685149
    Meðlimur

    …Hlíðarfjall á Akureyri loka ekki á neinn. Enn er í boði síðan í haust að ef fjórir taka sig saman og kaupa árskort í Hlíðarfjall fá þeir það á 10.000 kr. m/vsk í stað 14.000 kr. m/vsk.

    Þið getið kannað málið á:
    http://www.hlidarfjall.is/verd.htm
    http://www.hlidarfjall.is/árskort.htm

    Það þarf að koma a.m.k. þrjár helgar og skíða alla dagana svo það borgi sig + eitt föstudagskvöld því þá er alltaf opið til 21:00

    #47683
    0703784699
    Meðlimur

    Hvað eru það margar helgar að borga sig upp f. sunnanmenn?? Hvað kostar t.d. dagurinn, eða helgin?

    #47684
    0704685149
    Meðlimur

    Það er alveg sama hvernig þú reiknar þetta. Það borgar sig alltaf að fá sér árskort í Hlíðarfjalli því þú verðleggur ekki skemmtanagildið að koma Norður og vera á skíðum.

    En endilega reiknaðu þetta út frá þínum forsendum, þú getur skoðað verskránna í Hlíðarfjalli á linkunum hér að ofna.

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.