Simon Yates er að koma

Home Umræður Umræður Almennt Simon Yates er að koma

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45618
    0405614209
    Participant

    Daginn.

    Það er loksins komið á hreint, en Simon Yates (það vita allir hver hann er eftir „Touching the Void“) er á leiðinni og verður með myndasýningu og fyrirlestur næstu helgi. Ísalp stendur fyrir þessari uppákomu sem er mikill hvalreki á okkar fjörur. Nánari umfjöllun um Simon verður á netinu.

    Annað: Hann kemur með klifurgræjurnar með sér og spyr um hvert sé helst að fara til að komast í ís eða almennilega fjallgöngu. Hver býr yfir tillögum eða upplýsingum um aðstæður?

    Kveðja
    Halldór formaður

    #49581
    Hrappur
    Meðlimur

    Nú er lag að allir fái hann til að árita hnífana sína ;)

    #49582
    Karl
    Participant

    *

    #49583
    2806763069
    Meðlimur

    Er ekki best að senda Andra eitthvað með kallinum? Þá er tryggt að eitthvað mega gerist!

    #49584
    3008774949
    Meðlimur

    Andri fékk víst nóg og er kominn í hóp sófafjallamanna.

    #49585
    AB
    Participant

    Svona svona Sigurður, þó sófinn sé góður af og til er hann enginn staður til að dvelja á til frambúðar.

    Það mætti kannski koma Íslandi á kortið með því að lenda í einhverju hressilegu óhappi með Símoni. Sé fyrir mér nýja metsölubók og svo seinna kvikmynd:
    ,,Avoiding the Touch: A Tragedy with Djonní Bob in the Land of Ice and Snow“

    Annars ætla ég ekki að taka þetta verkefni að mér.

    Kv,
    AB

    #49586
    3008774949
    Meðlimur

    Áttu við að þú sért einungis tímabundinn sófafjallamaður?
    Er það skilgreint hugtak?

    #49587
    AB
    Participant

    Þú finnur það líklega ekki í alfræðiorðabók en þetta er að sjálfsögðu vel þekkt og kirfilega skilgreint hugtak sem allir fjallamenn verða að þekkja. Þannig er nú það og ekki öðruvísi.

    Annars átti ég nú við að sófinn er ágætur en til lengri tíma er þó betra að vera í Lazy-Boy.

    Kv,
    AB

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.