Síðan og spjallið

Home Umræður Umræður Almennt Síðan og spjallið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47609
    gulli
    Participant

    Jæja, þá er þetta allt að komast í samt lag, smá bras eftir uppfærsluna að láta þræði birtast á forsíðunni en núna er þetta OK.

    Og þá er hægt að læk-a og share-a og ég veit ekki hvað og hvað, bæði á greinar, fréttir og spjallþræðina.

    Góðar stundir!

    #56988
    Skabbi
    Participant

    Like á þig!

    Skabbi

    #56989
    0703784699
    Meðlimur

    Þetta lúkkar vel til að byrja með…..ánægður með framtakið, þið eigið lof og hrós skilið,

    kv.Gimp

    #56990
    1908803629
    Participant

    Þetta er snilld, ég er búinn að like’a þessum þráði og „þakka fyrir“ kommentið frá Gulla! Það er klárlega ekki hægt að biðja um meira!

    Vel gert Gulli og Óli

    #56995
    2109803509
    Meðlimur

    Gott mál að það sé ennþá verið að betur um bæta þessa síðu. Hvað er annars að frétta af skráningu leiða? Var það ekki ein helsta ástæða nýrrar heimasíðu á sínum tíma, þeas að bæta skráningu leiða?

    #56998
    Sissi
    Moderator

    Knús á Gulla fyrir að græja þetta, má ekki gleyma því að hann og Óli Hrafn mössuðu þessa síðu á sínum tíma, fór örugglega fullt af vinnu í það.

    Og +1 +1 +1 +1 +1 +1 +1 +1 á Berglindi.

    #56999
    0808794749
    Meðlimur

    Gott mál. Spjallið lítur mun betur út.
    Ég hljóma núna kannski eins og algjör norn en á sínum tíma þegar Gulli og Óli mössuðu síðuna, þá fengu þeir greitt fyrir það. Eitt af fáum verkum sem ég veit til þess að hafi verið greitt fyrir í þessum félagsskap.

    kveðja.

    #57001
    1811843029
    Meðlimur

    Bara til að það sé á hreinu þá fengu Gulli og Oli ekki greitt fyrir nýju uppfærsluna en þá fá hinsvegar kærar þakkir fyrir að græja þetta.

    Takk strákar!

    #57002
    1811843029
    Meðlimur

    Skráning leiða, Gummi ætti að geta frætt okkur eitthvað um stöðuna á því…?

    #57007
    gulli
    Participant
    Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
    Gott mál. Spjallið lítur mun betur út.
    Ég hljóma núna kannski eins og algjör norn en á sínum tíma þegar Gulli og Óli mössuðu síðuna, þá fengu þeir greitt fyrir það. Eitt af fáum verkum sem ég veit til þess að hafi verið greitt fyrir í þessum félagsskap.

    kveðja.

    Það er rétt, tókum þetta að okkur fyrir minna en helming af þeim tilboðum sem stjórnin hafði fengið í verkið. Þegar upp var staðið þá vorum við búnir að eyða ekki tugum heldur hundruðum tíma í þetta.

    Skil ekki hvað þú ert að ýja að en vil að það sé á hreinu að stjórnin ætlaði að greiða fyrir uppfærslu á heimasíðunni. Við lögðum síðan síðan út fyrir vinnu 3ja aðila við útlit sem og að kaupa ákvðena módúla fyrir síðuna. Þegar upp var staðið var tímakaupið ekki hátt.

    #57009
    Karl
    Participant

    Fínt að síðan sé poppuð upp, -greinilegt að umferðin margfaldaðist.

    -Eg skil nú innslag Sveinbjargar ekki sem aðfinnslu eða neikvæðni, hún er eingöngu að veita upplýsingar sem ágætt er að komi fram.
    Ekkert óeðlilegt að kostnaður sé af heimasíðunni.

    #57014
    Arnar Jónsson
    Participant

    Sæl öll sömul,

    Frábært að heyra að fólk sé ánægt með breytingarnar :) Þessi vinna er ekki lokið svo þið vitið og munu þið sjá fleirri jákvæðar breytigar koma framm á næstu misserum.

    Varðandi skráningu nýrra leiða þá er verið að vinna í því. En það er flókið verk svo endilega verið þolimóð :) Sem bráðarbyrgðar úrræði, þá megið þið endilega setja inn þessar upplýsingar á „nýjar leiðir“ þráðinn sem var stofnaður fyrir svolitlu síðan. Til að það sé einfaldara fyrir ykkur að finna þetta, þá setti ég inn link neðst í „Aðalval“ hérna til hliðar svo það sé auðveldara að finna þetta. Ég mun svo einnig setja inn nýskráningu fyrir klettaleiðir eftir smá.

    Kv.
    Arnar

    #57015
    Sissi
    Moderator

    Nú erum við að tala saman.

    *Klapp á bakið.

    #57022
    Gummi St
    Participant

    Nýjar forsíðumydir eru komnar inn sem munu príða forsíðuna á næstunni, einnig er gott safn af gömulm og góðum.

    Skemmtileg viðbrögt frá því að ég auglýsti eftir forsíðumyndum og nú hafa nokkrir sent mér myndir. Frábært mál!

    #57026
    Björk
    Participant

    gaman að fá nýjar forsíðumyndir :)

    myndin í dag af andra og steppó er alveg ótrúlega skemmtileg.

    #57030
    AB
    Participant

    Þetta eru fínar breytingar. Ég tek svo undir með Berglindi og Sissa um mikilvægi þess að nýskráningu leiða sé komið í ásættanlegt horf. Það er gott til þess að vita að verið sé að vinna í því máli.

    Kveðja,
    AB

    #57035
    0801667969
    Meðlimur

    Umræðan byrjaði með að hér væri ekki nógu mikið líf. Þyrfi að breytast til að líkjast facebook með öllum sínum „like“um og vinsældakosningu.

    Ég hef áður bent á að fara varlega í breytingar á heimasíðum. A.m.k. á síðum sem eru sæmilega lifandi og einhver umræða á sér stað.

    Síða Landsbjargar og HSSR eru góð dæmi. Þar blómstraði oft á tíðum mjög lífleg umræða. Steindauðar síður í dag sem engin lítur á. Allt í kjölfar „fancy“ breytinga. Ekkert spjall, engin skoðanaskipti.

    Megin galli breytinganna núna er hversu fáir þræðir eru á forsíðunni. Þræðirnir hverfa þarmeð mjög fljótt út af henni. Fólk sem ekki er stöðugt á síðunni missir af umræðum (þráðum) og hún deyr sjálfkrafa út. Að þessu leyti náum við að líkjast facebook vel a.m.k. helsta galla facebook. Mikil afturför að mínu mati og þyrfti að breyta.

    Kv. Árni Alf.

    #57036
    gulli
    Participant

    Við ættum að geta breytt þessu í hvelli Árni.

    #57037
    0801667969
    Meðlimur

    Ekki lengi verið að kippa hlutunum í lag á þessum bæ. Frábært drengir.

    Kv. Árni Alf. nöldurseggur

    #57185
    Steinar Sig.
    Meðlimur

    Mjög góðar breytingar á spjallinu.

    Nú er fólk duglegt að setja inn myndir í spjallþræðina. Það er samt þannig að til þess að sjá myndirnar þarf fólk að vera skráð inn. Er það ekki óþarfi? Væri ekki skemmtilegra ef allir gætu séð fallegu myndirnar okkar. Líka leiðinlegt að þurfa alltaf að skrá sig inn.

    kv.
    Steinar

    #57193
    0801667969
    Meðlimur

    Sammála Steinari. Er nokkuð fengið með því að loka sig af? Held að það hafi bara þveröfug og neikvæð áhrif. Svo nennir maður ekki að logga sig inn.

    Kv. Árni Alf.

    #57205
    gulli
    Participant

    Ég breytti þessu eiginlega um leið og Steinar póstaði þessu.

    #57245
    2109803509
    Meðlimur

    Hvernig finnur maður eldri umræður en þær sem birtast á forsíðunni? Ef ég klikka á „fleiri þræðir“ koma bara upp tveir nýjustu þræðirnir. Var t.d. að leita að umræðunni um gufunesturninn áðan en gat engan veginn fundið inni á síðunni. Kom ekki upp í leitinni heldur. Með því að googla „gufunesturninn“ fann ég þráðinn :)

    kv. Berglind

    #57250
    Steinar Sig.
    Meðlimur

    Ýmsar leiðir til þess. Getur smellt á Umræður í Aðalvalinu uppi vinstra megin, Umræður efst í hverjum þræði eða smellt á index eftir að hafa smellt á fleiri þræðir.

    Væri samt mjög rökrétt að fleiri þræðir vísaði yfir á umræður index.

    #57253
    Skabbi
    Participant

    Ég get leitað vandræðalaust, flipi sem á stendur „Search“ þegar maður smellir á „Umræður“ hérna vinstra megin.

    Skabbi

25 umræða - 1 til 25 (af 26)
  • You must be logged in to reply to this topic.