Lausamjöll

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Lausamjöll

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46081
    0902703629
    Meðlimur

    Hér á Akureyri hefur snjóað látlaust í nokkra sólarhringa og nú hefur stytt upp. – Lausamjöll/logndrífa/púður upp í mitti og þá er gaman að leika sér á skíðum!

    Kristín

    #51191
    0801667969
    Meðlimur

    Iss þetta er nú ekki neitt. Hér í Bláfjöllum höfum við haft látlausa heiðríkju og blíðu undanfarið og hardcore snjó. Gamlir kallar kalla þetta harðfenni eða skara. Svona hardcore snjór krefst hardcore skíðamennsku.

    Kveðjur að sunnan, Árni

    #51192
    2003793739
    Meðlimur

    Iss.
    Nóg af snjó í Danmörku í síðustu viku, samfélagið lamaðist í 2 daga.
    Kveðjur frá DK, Halli

    #51193
    2002773689
    Meðlimur

    Verð að taka undir orð Kristínar um eðalfærið í Hlíðarfjalli. Í gær dömpaði slatta og utanbrautaraðstæður eru að verða ansi krassandi á nýjan leik. Ekki sakar að hafa sem sverasta planka undir löppunum.

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.