Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Karri vann EKKI…
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
9. mars, 2008 at 21:04 #46351
0704685149MeðlimurNú er eitt af þeim bestu telemarkfestivalum lokið. Utanbrautarfæri var með besta móti alla helgina og mjög erfitt að halda samhliðasvig keppni í svona frábæru veðri og færi, þar sem allir voru óðir í að skíða í stað þess að keppa. Garðbæingarnir stóðu sig vel í skipulagningunni á keppninni ásamt ræsinum, Valla.
Helstu úrslit eru að: Berglind Aðalsteinsdóttir vann samhliðasvig kvenna og hann Böbbi karlaflokkinn.
Maður mótsins var Ólver Helgos og kona mótsins var Maggý Gólos.
Á næstu dögum kemur smá grein um Telemarkfestival ’08.
Við þökkum öllum sem hjálpuðu okkur og ykkur sem mættu.
Cintamani búðin, Fallakofinn, 66N, Janus búðin, Penninn Eymundsson, Síminn og Útivera gáfu vinninga. Þökkum við þeim kærlega fyrir og viljum biðja ykkur að hafa þessar verslanir í huga þegar þið þurfið að kaupa vöru og þjónustu sem þessi fyrirtæki bjóða upp á.
kveðja Bassi og Böbbi og allir hinir.
9. mars, 2008 at 21:04 #52559
0704685149MeðlimurÁtti auðvita að vera Kjarri…
9. mars, 2008 at 22:42 #52560
2005774349MeðlimurÉg þakka fyrir mig, mega töff.
HRG.
10. mars, 2008 at 10:46 #52561
0310673839MeðlimurSem nýliði á þessu móti kom mér spænkt fyrir sjónir að tveir sem búið var að slá út skildu keppa til úrslita!!!

En það eru greinilega aðrar reglur í telemarkinu. En hvað um það, ég skemmti mér vel og mæti galvaskur á næsta mót ef ég er á Akureyri.Takk fyrir mig!
Óli B10. mars, 2008 at 13:17 #52562
1402734069MeðlimurJá …. það kom skemmtilega á óvart

-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.