ísinn

Home Umræður Umræður Almennt ísinn

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46175

    Ég og Örlygur fórum í dag og klifruðum orginalinn í Grafarfossi. Fínn í þó frekar kertaður í miðpartinum. Grannin er í góðum gír fyrir þá sem vilja klifra leið í léttari kaflanum. Leiðirnar fyrir ofan Grafarfoss sýndust mér ekki vera í aðstæðum. Kókostréð varla klifranlegt. myndir frá ferðinni á http://www.pbase.com/agustthor/grafarfoss

    Nýttu menn og konur ekki þessa frábæru helgi til að fara að klifra? Eða eru allir lungun full af púðri úr Bláfjöllum?

    #50168
    3008774949
    Meðlimur

    Bláfjöllin komu sterk inn um helgina….eða svona til hádegis þegar allir voru búnir á útsölum í kringlunni og fjölmenntu uppeftir á stóru jeppunum sínum. Snilldarfæri og gott veður….

    #50169
    Siggi Tommi
    Participant

    Fór við sjötta mann í Eilífsdal í 13 tíma maraþonferð í gær. Óðum gríðarlegt magn af snjó upp í fínar aðstæður hjá Einfaranum og Tjaldsúlunum.
    Ferðin inneftir, sem venjulega tekur ca. 1,5 tíma, tók núna rúma 3 tíma og rúma 2 að koma sér til baka. Hefðum betur haft vaðið fyrir neðan okkur og farið á skíðum…
    Ísinn fínn en snjófargið náði óþarflega hátt upp í vegginn. T.d. náði skaflinn nokkurn veginn alla leið upp Einfarann og hengjan þar fyrir ofan var ca. 10m há.

    Sökum snjóflóðahættu létum við okkur nægja að brölta í neðri parti Einfarans en allar Tjaldsúlurnar eru í þokkalegum aðstæðum, þó sú lengst til hægra klárlega sverust (meira að segja Tjaldið náði 2/3 niður). Þilið náði ekki saman en var samt á góðri leið.

    Snilldar dagur þrátt fyrir söffer labbið. Aðkoman ævintýri út af fyrir sig en óþarflega mikið af deginum fór vissulega í töltið…
    Myndir vonandi í dag frá einhverjum okkar.

    #50170
    Stefán Örn
    Participant

    Ég, Freyzi og Robbi klifruðum Anabasis í Vesturbrúnum á laugardaginn. Freyzinn var þarna líka á ferðinni með Tryggva á fimmtudaginn. 2x í sömu vikunni => Skemmtileg leið.

    Ísfossinn þunnur og kertaður en skemmtilegur. Þónokkur snjór í gilinu sem tók við og hafði Robbi gaman af því að troða marvaðann fyrir okkur letingjana. Mæli með þessari.

    Hils,
    Steppo

    #50171
    Siggi Tommi
    Participant

    Myndir úr Eilífsdal komnar á mínar síður. Myndir í boði mín og Bjögga.
    http://www.isalp.is/mypages.php?op=page_review_entry&id=414

    Engar myndir úr Vesturbrúnunum?

    #50172
    0309673729
    Participant

    Rétt slóð á myndinar úr Eilífsdalnum mundi vera
    http://www.isalp.is/art.php?f=86&p=414

    (Hin slóðin er sú sem Sigurður Tómas notar til að uppfæra síðuna)

    kveðja
    Helgi Borg

    #50173
    Robbi
    Participant

    Gaman að segja frá því að þeir sem vilja labba upp á brún þá er Einfarinn gönguhæfur upp sökum gífurlegs fannfergis. Það mætti kanski ljúka deginum með því að vera þá fyrstur íslendinga til að skíða svo niður. Það væri þá í fyrsta sinn hér sem menn myndu skíða niður ísleið… pæling
    Gvöð minn þvílikur snjór.
    Robbi.

    #50174
    Robbi
    Participant

    Hvernig er það…fór enginn í Múlafjall eða Glymsgil ?
    Robbi

    #50175
    Karl
    Participant

    Það er nú ekki svo gott að ég hafi verið við ísbarning um helgina en vil leiðrétta misskilning Robba um skíðun ísleiða. Það hefur fjöldi einnar spannar 3° ísleiða verið skíðaður. Í svipin man ég eftir því að hafa skíðað Grannan við Grafarfoss, og bæjarfossinn á Skógum. Þetta voru bara venjulegar skíðabrekkur í þeim snjóalögum sem voru þegar þetta var skíðað.

    #50176
    1306795609
    Meðlimur

    Til Kalla: Iss, efrilyftan á Seljalandsdal var einmitt 3°.

    #50177
    Gummi St
    Participant

    Tilvitnun:
    Róbert Halldórsson skrifar:
    Hvernig er það…fór enginn í Múlafjall eða Glymsgil ?
    Robbi

    Ég fór í múlafjall á sunnudeginum… það eru myndir þaðan á http://php.internet.is/gummistori
    fínn dagur og þónokkrar færar leiðir…

    kv. Gummi St.

    #50178
    0703784699
    Meðlimur

    þegar ég vaknaði upp af værum blundi á hótelherberginu mínu í morgun að þá örlaði ekki f. snjó, arkaði því í stuttbuxunum mínum og stuttermabol út í morgunmat.

    Næsta skref er að halda áleiðis til englaborgarinnar og svo bara vinna vinna vinna þangað til maður kemur heim í byrjun feb.

    kveðja úr sólinni í San Diego,

    Himmi

    PS: aldrei að vita nema maður taki létt surf eftir að hafa tekið morgun skokkið á Mission Beach?

    #50179
    Sissi
    Moderator

    Skemmtilegur fróðleikur um anabasis: http://en.wikipedia.org/wiki/Anabasis_(Xenophon)

    (<a href=“http://en.wikipedia.org/wiki/Anabasis_(Xenophon)“>virkar html?</a>)

    Sissi

    #50180

    Ég og Daði Snær fórum og klifruðum Grannann eftir skóla. http://www.pbase.com/agustthor/grafarfoss
    Svo er bara frost í kortunum nema á miðvikudag.

    #50181
    Stefán Örn
    Participant

    Myndir frá Vesturbrúnum:
    http://gallery.askur.org/album469

    #50182
    0311783479
    Meðlimur

    Áhugaverð ádeila siggaskarp á neyslusamfélagið og börn þess; útsölur og stóra jeppa.
    Siggi veit hvað hann syngur því sem sannur kommúnisti, eða það kallaði einhver liðþjálfinn á Flugvallarvegi hann fyrir áratug eða svo, þá ók hann löngu afskrifaðri Lödu samöru allan háskólann og ófáar Hnappavallaferðir voru farnari í henni.

    Aðstæður eru þunnar í Hálöndunum núna, einhver traffík var á Ben Nevis og Cairngorms. Skíðasvæði hér eru lokuð – kæmi mér ekkert á óvart ef þau yrðu það bara þennan veturinn.

    lifið heil
    Halli

    ps. ég ætlaði vera með einhvern góðann punkt en þetta rann bara út í sandinn hjá mér, tja kannski eins og oft áður… ;o)

    #50183
    2908805139
    Meðlimur

    Gaman þegar hægt er að sameina varasama jaðaríþrótt og fræðslu um heimsbókmenntirnar, sbr Anabasis.

    Takk fyrir ábendinguna Sissi.

    #50184
    2806763069
    Meðlimur

    Lika fullt af is her i Chamonix. Tok einmitt einn litinn foss i gaer. Sem er vart i frasogu faerandi nema fyrir thaer sakir ad eg var med skidin a fotunum (amk svona fyrst um sinn) og i stadinn fyrir ad fara upp for eg nidur, sneri baki i fossinn og hafdi hausinn a undan. fossinn var einhverstadar a milli 5m og 8m og thetta er thvi lang lengsta fall sem eg hef tekid i is. Annars er liklega eitt besta klifur-season i langan tima i Cham og tvi mjog gott ad axirnar og broddarnir seu i geymslunni heima a islandi.

    Njotid annars medan a nefinu stendur thvi eg kem bradum heim og reynslan synir ad tha fer ad rigna.

    #50185
    2401754289
    Meðlimur

    Ennþá snjór í Kanada líka! Var að koma heim eftir 4 daga fótósjút með Mark Gallop (kannski kannast snjóbrettafólið við nafnið) og vorum við að horfa á brettara fara 20mplús yfir fossa og hvað sem varð á þeirra vegi. Snjóaði að meðaltali 1.5m síðustu vikuna og því bara púðurheven!!!

    hilsen
    Freon

    #50186
    Sissi
    Moderator

    Það mætti halda að Ívar væri kominn heim. Nú rignir, og lítur ekki út fyrir H2O í storkuham næstu dagana. En reynir maður ekki samt? Sannir ÍS-lendingar og allt það.

    Freon, þegar þú talar um snjóbrettafólið ertu þá að meina einhvern sérstakan?

    Geri líka ráð fyrir að Mark Brokk (e. Gallop) sem þú nefnir líka eigi meira skylt við Mark þann er kenndur er við IMG (einnig þekkt sem Gallup). Hann er ansi magnaður ljósmyndari, þið getið m.a. skoðað töff myndir eftir kallinn hér: http://www.gallupphoto.com.

    Náðir þú að plata hann til að skjóta eitthvað flott af þér? Væri ekki amarlegt að eiga svona fínar myndir af sér, ha? Voru einhverjir þekktir kappar að renna sér á hlið niður 4° leiðir? Og slógu Kalla út í leiðinni?

    Hils úr rigningunni og hafið það sem allra best, heppnu tíkasynir, eins og kaninn segir oft af einskærri væntumþykju.

    Sissi (bara búinn með einn bjór).

    #50187
    2401754289
    Meðlimur

    Það er rétt Sissi…sami ljósmyndari

    bk Freon

    er á þriðja bjór…er líka í fríi frá skíðun og klifri í dag jibííí

21 umræða - 1 til 21 (af 21)
  • You must be logged in to reply to this topic.