„Ice-Bjorg“

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur „Ice-Bjorg“

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46775
    Karl
    Participant
    #54047
    Anonymous
    Inactive

    Ég var að reka augun í þetta og er þetta alveg til fyrirmynda og mætti alveg „plögga“ þessu á erlendum klifursíðum. Virkilega vel gert hjá þeim og vona ég svo sannarlega að þetta verði eitthvað sem mikið kemur út úr.

    #54048

    Já þau eru búin að vera með slatta af upplýsingum um klifur á síðunni sinni í nokkurn tíma, pósta myndum og einhverjum lýsingum á þessu. Hlöðver á Björgum er alger snillingur og hefur svo mikinn áhuga á þessu klifurstússi fólks að það er yndislegt. Alger skylda að heyra í honum áður en brunað er í gegn og farið að klifra.

    Það eru nú alveg sóknarfæri í svona löguðu fyrir nokkra í kringum landið. Mér dettur nú í hug hann Jón Þórðarson á Bíldudal sem var „gestgjafi“ okkar á ísefestivalinu í ár. Hann rekur fína síðu og ekki væri verra að hafa þar svæði sem væri spes um þessa hluti.

    #54049
    3110665799
    Meðlimur

    Ferðaþjónustu aðilar á sunnanverðum Vestfjörðum hafa keypt þetta lén og vilja gjarnan fá eitthvað frá ísfestivalinu fyrir westan eins og nafnið bendir til mætti vel finna þar svæði fyrir ísbrölt.

    #54050
    #54051
    0311783479
    Meðlimur

    Mikid heidursfolk ad Bjorgum!

    #54052
    Skabbi
    Participant

    „Ferðaþjónustu aðilar á sunnanverðum Vestfjörðum hafa keypt þetta lén og vilja gjarnan fá eitthvað frá ísfestivalinu fyrir westan…“

    Veistu e-ð meira um þetta? Þú ert væntnalega að tala um lénið http://www.vetrarsport.is, sem er ótengt sem stendur. Hverjir standa á bak við þetta og hvað vilja þeir fá?

    Annars tek ég heilshugar undir með Bjögga og Halla, Hlöðver á Björgum og hans fjöskylda eru mikið sómafólk, um að gera að setja sig í samband við kallinn ef maður er á svæðinu. Helst áður en maður festir bílinn…

    Allez!

    Ska

7 umræða - 1 til 7 (af 7)
  • You must be logged in to reply to this topic.