- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
2. febrúar, 2004 at 10:18 #45305
RobbiParticipantÉg vona að íslenskir fjallamenn séu heiðarlegir. Þannig er mál með vexti að ég fór í Flugugilið ásamt félaga mínum á sunnudaginn,notabene þar voru mjög fínar aðstæður. En á í flýti mínu á leiðinni niður þá smokraðist dúnúlpan undan topphólfinu á pokanum og ég tók ekki eftir því og hún varð eftir einhverstaðar á leiðinni niður. Ef einhver vaskur maður/kona á leið í flugugil eða á þær slóðir og rekist á úlpuna góðu þá vona ég svo sannarlega að hinir íslensku fjallamenn séu heiðarlegir og láti mig vita í síma 8662235.
kv.RH2. febrúar, 2004 at 12:10 #48384
Siggi TommiParticipantJá, skelltum okkur þarna uppeftir í gær og það var gríðarleg snilld enda er þetta gil unaðslegt alveg hreint.
Fórum 3 góðar þriðju gráðu leiðir inni í gilinu og eina í klettunum vestan megin. Sú leið var reyndar heldur þunn en upp skemmtilega þrönga rás. Lentum í smá brasi við að henda upp V-þræðingu í lokin enda skall á okkur myrkur og ísinn ekkert spes traustvekjandi… Fór allt vel að lokum þó það tæki lengri tíma en fyrirhugað var (komnir niður í bíl um 7).
Það var víðast tiltölulega mikill ís, þó hann væri dálítið blautur á köflum þar sem rennsli var í gangi. Áttum í vandræðum með að átta okkur á hvaða leiðir voru hvað í tópóinu svo það er erfitt að segja til um hvaða leiðir eru í aðstæðum. Erfiðari leiðirnar virtust vera heldur þynnri og kertaðri (sýndist okkur alla vega en þetta var alla vega tiltölulega byrjendavænt… -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.