Glymsgil

Home Umræður Umræður Almennt Glymsgil

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45501
    0405614209
    Participant

    Ég og Ingvar Þórisson skruppum í Glymsgil í gær – sunnudag og það er töluverður ís í gilinu og fínar aðstæður.

    Kveðja
    Halldór

    #48305
    Páll Sveinsson
    Participant

    Hvernig er áinn?
    Er göngufæri inn í botn án þess að vaða?

    Palli

    #48306
    Anonymous
    Inactive

    Var eitthvað klifrað????
    Olli

    #48307
    0405614209
    Participant

    Blessaðir.

    Áin var meira og minna á ís og ég myndi reikna með að hún væri í sæmilegu göngufæri. Hvernig hún aftur verður núna í hlákunni get ég ekki sagt til um en reikna þó með að hún verði verri en hún var (skarplega ályktað). Það var samt eitthvað af götum á ísnum en þetta var meira og minna lagt.

    Auðvitað var klifrað – til þess er nú leikurinn gerður. Við klfiruðum þarna á 4 stöðum (ég man aldrei hvað þessar leiðir heita frekar en veiðiflugurnar). Maður er samt í svoddan skítaformi að við smelltum upp ofanvað og tókum þetta með trompi og vorum svo í tækniæfingum.

    Þetta var alveg skínandi fínt og verst að veðrið sé að gera okkur þennan grikk núna með hitabylgjunni.

    Halldór

    #48308
    Anonymous
    Inactive

    Það getur verið mikil blessun að fá hláku núna EF OG AÐEINS EF það frystir fljótlega á eftir þá verður mjög mikill og góður ís alls staðar. Það er venjulega mikið meira af ís eftir umhleypinga- samt veður heldur en stöðugan frostakafla ef hitinn nær aldrei að verða of langlífur.
    Olli

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.