FitzRoy

Home Umræður Umræður Almennt FitzRoy

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46107
    2806763069
    Meðlimur

    Cintamani styrkurinn strax farinn að skila sér. Virkilega metnaðarfullt takmark sem vonandi verður til að lyfta íslenskum Alpinisma á hærra plan, og ekki veitir af!

    Óska styrkþegum gæfu og gengis, og ekki síst góðu veðri!

    Vona samt að þeir sem ekki fengu styrk láti það ekki stoppa sig, eftir allt saman… hvað er 200.000 kall og TexMex galli milli vina! Dropi í hafið… GO! GO! GO!

    #51562
    Gummi St
    Participant

    já, bíð spenntur eftir að fá lýsingar/myndir eftir þessa ferð… þetta er alvöru! Gangi ykkur vel í þessu strákar !

    kveðja, Gummi St.

    #51563
    0111823999
    Meðlimur

    glæsilegt verkefni sem varð fyrir valinu og ekki vantar metnaðinn!
    Gangi ykkur vel með þetta !

    #51564
    Stefán Örn
    Participant

    Þetta er flott! Gangi ykkur vel.

    Hils,
    Steppo

    #51565
    Smári
    Participant

    Flottir, hvenær á að fara?

    kv. Smári

    #51566
    0310783509
    Meðlimur

    Til hamingju strákar, flott og metnaðarfullt plan.

    Þegar þið viljið byrja að æfa (ef þið eruð þá ekki byrjaðir nú þegar) þá eruð þið velkomnir hingað til Ameríkunnar. Ég er staddur í Teton Fjöllunum þessa dagana og stefni til Yosemite þegar hitastigið fer lækkandi og svo eyðimörkin eftir það. Af nógu að taka og rúmir þrír mánuðir eftir af kletta klifurtímabilinu á þessum bæ áður en veturinn tekur við í Kanadísku klettafjöllunum.

    Baráttu kveðjur
    Einar Ísfeld

    #51567
    2704735479
    Meðlimur

    úúú -hvað með Bishop, eruð þið búin að kíkja þangað?

    : ) : ) : )

    #51568
    0310783509
    Meðlimur

    Hef ekki komist þangað ennþá, en eins og alltaf þá þarf maður að eltast svolítið við góða klifurfélaga þegar maður er einn á ferð… Fínt að fá frí frá því í smá bouldering í Bishop. Í byrjun næsta mánaðar fer ég að færa mig um set kannski maður kíki við.
    Ef eitthver er á ferðinni látið þá heyra frá ykkur !!

    Kv. Einar Ísfeld

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.