Festivalið

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Festivalið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45981
    Skabbi
    Participant

    Það dregur nær festivalinu í Berufirði og Breiðdal. Okkar maður fyrir austan átti leið um svæðið um síðustu helgi og leist vel á aðstæður. Mikill fjölbreytileiki er á svæðinu, bæði hægt að sækja hátt og lágt, allt eftir hitastigi og aðstæðum.

    Samkvæmt veðurspá gerir hlákuskot fram að helgi og í fyrri hluta næstu viku. Suðausturlandið kemur einna best út úr þessu tímabili, hitinn þar rétt skríður uppfyrir frostmark og úrkoma er lítil.
    Á þriðjudaginn kemur er reiknað með að hitastig á landinu falli aftur vel niðurfyrir frostmark. Við vonum að sjálfsögðu að það haldist framyfir helgina.

    Það er því engin ástæða til að örvænta, stefnan er enn sett á suðaustur hornið. Ég hvet alla sem eru að hugsa um að skella sér með okkur að skrá sig, það auðveldar okkur í stjórninni að panta gistingu og aðra skipulagningu.

    Allez!

    Skabbi

    #52444
    Smári
    Participant

    Hvet alla til ad skrá sig hvort sem menn eru med félaga eda ekki. tad reddast á stadnum.

    Ég er t.d. enn án félaga….

    Smári

    #52445
    1108755689
    Meðlimur

    Gott pepp strákar. Er búinn að skrá mig. Auglýsi her með eftir plássi í bíl fyrir kassavanann karlmann á besta aldri. Er feykimyndarlegur, þéttur á velli með hörfandi hárlínu og kímnigáfu í meðallagi góða. Verð einn á ferð (sem er ótrúlegt miðað vð lýsinguna hér að ofan) svo mig vantar einnig klifurfélaga.

    Bragi

    #52446
    Siggi Tommi
    Participant

    Fer með þó ég sé ekki að safna enni eins og Bragi… :)

    #52447
    1108755689
    Meðlimur

    p.s. hægt að ná í mig í s. 825-5034 og bragifreyr(hja)gmail(punktur)com

    #52448
    Robbi
    Participant

    Hvað með alla gömlu kallana?
    Ætlar enginn af þeim að mæta, hvar er Jón Haukur, Palli, Guðmundur Helgi og allir hinir ?

    Ekki ætliði að láta ykkur vanta á annað festivalið í röð…eru þið kanski hræddir við fetlalausu kynslóðina ?

    Robbi

    #52449
    Skabbi
    Participant

    Það er naumast gorgeirinn! Klifrar eina leið undir Eyjafjöllum og veður svo uppi með derring og dónaskap!

    Ég er sko ekkert hræddur við þig, ef þú verður með svona stæla fer ég ekki í ríkið fyrir þig.

    Skabbi
    sem er illt í mjöðminni…

    #52450
    Anonymous
    Inactive

    Palli , Olli og Guðjón Snær ætla að mæta
    Olli

    #52451
    2506663659
    Participant

    Og erum óhræddir :)

9 umræða - 1 til 9 (af 9)
  • You must be logged in to reply to this topic.