Eyjafjallajökull

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Eyjafjallajökull

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46690
    Stefán Örn
    Participant

    Fórum sex vaskir piltar á Eyjafjallajökul á laugardaginn – Steppo, Siggi Skarp, Helgi Hall, Ådne hinn norski og bræðurnir Halli og Haukur. Snérum við í 1500 metrum enda veðrið orðið afar slæmt og A4 útsýni. Rennslið hið ágætasta og náðum að ljúga okkur alla leið niður í bíl án þess að taka af okkur skíðin. Jökullinn var mjög þægilegur yfirferðar og ekkert um sprungur nema nokkrar áberandi á helstu bungum.

    Tek undir með Olla. Eyjafjöllin litu gríðarlega vel út. Spurning hvað það helst lengi í komandi hitatíð.

    Steppo

    #49364
    Sissi
    Moderator

    Buhuhuhuhu :(

    Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
    Búist er við stormi á norðvestanverðu landinu síðdegis.

    Sunnan og suðvestan 10-18 m/s og rigning eða súld, en 5-13 og úrkomulítið um landið austanvert. Hvessir síðdegis, 18-25 norðvestantil síðdegis, annars hægari. Hiti 4 til 10 stig, en 0 til 4 stig austanlands í fyrstu. Suðvestan 5-10 á morgun og víða súld vestanlands, en skýjað með köflum og þurrt austantil.

    Á miðvikudag og fimmtudag: Vestan og suðvestan 5-10 m/s og lítilsháttar súld eða rigning öðru hvoru vestantil, en léttskýjað austantil. Hiti 4 til 9 stig.

    Á föstudag: Suðvestanátt, 8-13 m/s norðvestantil, en annars hægari. Rigning eða slydda sunnan- og vestantil, en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 6 stig.

    Á laugardag og sunnudag: Suðvestanátt og súld eða rigning, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hlýtt í veðri.

    #49365
    Siggi Tommi
    Participant

    Þetta er nú meiri viðbjóðurinn.
    Eins gott að leggja öxunum og skíðunum bara strax… :(
    Stefnum á klettaklifurfestival um miðjan febrúar.

    #49366
    2003793739
    Meðlimur

    Ég legg til að sem flestir fara bara og prófi nýju leiðirnar í Klifurhúsinu.

    Fínar leiðir komnar upp eftir keppnina á sunnudaginn.

    Takk fyrir frábært bouldermót.

    Kv
    Halli

    #49367
    Sissi
    Moderator

    Ahm – skipuleggjendur eiga heiður skilinn!

    #49368
    Stefán Örn
    Participant

    Sett’inn nokkrar myndir frá ferðinni.
    Þær eru hér=> http://gallery.askur.org/album290

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.