Adrenalíngarðurinn

Home Umræður Umræður Almennt Adrenalíngarðurinn

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46561
    Karl
    Participant

    Sælir félagar,
    Nú höfum við Óskar Guðjónsson byggt þetta líka fína leikfangaland á Nesjavöllum sem við köllum Adrenalíngarðinn.
    Klifurveggurinn þar er reyndar ákaflega hógvær en það sama verður ekki sagt um Risaróluna, Staurinn og Bjálkaklifrið.
    Við verðum með formlega opnun Laugardaginn 16. júlí og þangað er ykkur öllum boðið.
    Við erum með keppni á laugardagin um bestu frasana frá þeim sem eru að prjámast uppá staurinn eða eru að stökkva frammaf honum. -Viskíflaska í verðlaun (kemur sér vel á Hraundrangann).
    Þið notið svo vonandi tækifærið næst þegar ykkar vinnustaður, saumaklúbbur, framsóknarflokksdeild eða hvað þetta allt heitir vill lyfta sér upp, -að skella ykkur í Adrenalíngarðinn.

    Nánari upplýsingar á http://www.adrenalin.is

    #49869
    Anonymous
    Inactive

    Kalli þú tókst þig vel út þarna!!!!!!! Var þetta bros eða gretta???

    #49870
    Karl
    Participant

    Hverslags komment er þetta eiginlega frá Olla horgemling…
    -Eg er alltaf svona fallegur!

    #49871

    Ég keyrði þarna framhjá í gær og þetta lúkkaði mjög töff. Gott framtak og maður þarf greinilega að tjékka á þessu.

    #49872
    1704704009
    Meðlimur

    Ég prófaði 6 þrautir í gær og get alveg sagt að þetta var bara þrælmagnað. Svo var kaffi og Freyjustaur ókeypis í búningatjaldinu. Maður þarf að koma aftur og prófa fleiri þrautir.

    #49873
    2003793739
    Meðlimur

    Skoðaði þetta um daginn, maður þarf að drífa sig í að prófa.

    Til hamingju með þetta Kalli og Óskar.

    Kv
    Halli

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.