Re: svar: Megintryggingar

Home Umræður Umræður Almennt Megintryggingar Re: svar: Megintryggingar

#51339
Siggi Tommi
Participant

Hmm, ekki var ég að skilja á þessum texta að hinn almenni klifrari ætti að hætta að nota cordalette, eða „þarfaspotta“ eins og margir kjósa að kalla hann og mér þykir gott hugtak.

Það sem ég túlkaði út úr þessu er:
1) notaðu þarfaspotta ef þér líður vel með hann, sérstaklega þægilegt ef menn eru með „block-leading“ í gangi
2) notaðu línuna til að gera akkeri ef þú kannt góða aðferð við það
3) kostir hverrar aðgerðar eru líklega jafn margir og gallar hennar og því er ekki hægt að segja að ein sé annarri fremri. Dómgreind viðkomandi og aðstæður hljóta að ráða úrslitum um hvaða kerfi á að nota.
4) BIBO (bullshit-in-bullshit-out) reglan gildir. Skiptir ekki öllu máli hvaða hnýtingaraðferð er notuð til að binda saman tryggingar, ef þær eru drasl þá verður akkerið drasl en ef þær eru góðar þá dugar þetta allt saman oftast prýðilega.