Re: svar: Master Blender – cutting da mix

Home Umræður Umræður Almennt Hraundranginn Re: svar: Master Blender – cutting da mix

#49841
1402734069
Meðlimur

Alveg rétt hjá Karli að hefja viskíumræðuna. Menn hafa nefnilega orðið vísir að því að skilja eftir í fleygnum ýmislegt annað en viskí, s.s. vatn eða vodka! Spurning hvaða blöndunarmeistari hafi verið þar á ferð?

Spurningin er líka hvenær ætti að skilja eftir nýjan fleig, í stað þess að fylla á. Hér er kannski komið verkefni fyrir stjórnina að íhuga. Í stað þess að greiða félagsgjöld getum við Norðanmenn séð til þess að fleygurinn sé tiltölulega nýlegur og þá vonandi með óblönduðum veigum?

En í guðana bænum … ekki gleyma hressingunni!

Kv.
Böbbi