Re: Re: Yosemite?

Home Umræður Umræður Klettaklifur Yosemite? Re: Re: Yosemite?

#56304
Siggi Tommi
Participant

Yosemite er alveg magnaður staður. Var þarna í rúma viku í maí 2001.
Var að stíga mín fyrstu spor í dótaklifri þennan vetur, var á ca. 5.9/10 leiðsluleveli um vorið. Var nógu góður til að njóta þess þó svo möguleikarnir aukist töluvert eftir því sem getan og reynslan er meiri.
Þarna er endalaust af leiðum af öllum kaliber og lengdum.

Nokkrar leiðir sem ég man eftir frá því um árið:
Frábærar <10 spanna leiðir á Cathedral Rock/Spire svæðinu (mikið 5.8 og 5.9). Fór t.d. Braille Book (5.8) og standard leiðina á Higher Cathedral Spire (5.9)
Royal Arches er klassísk 5.6, sennilega 10-15 spannir (flestar mjög léttar með einum kaðalpendúl milli sprungukerfa).
Svo er Nutcracker rétt hjá Camp 4, 5.8 nokkurra spanna klassík. Nokkrar beint ofan við Camp 4 minnir mig líka, þó engin meistarastykki.
Einnig eitthvað á Half Dome, t.d. Snake Dike, 5.8 (lentum í þrumuveðri uppfrá svo við klifruðum hana ekki).
Svo er „sportdótasvæðið“ Cookie Cliff, sem er með dót frá 5.9/10 og upp úr. T.d. klassíkina Outer Limits (5.10a, myndir úr henni í klifurbók sem ég á meira að segja). 1-2 spannir flestar allt frá stífum fingrasprungum upp í offwidth strompa nastyness (t.d. Meat Grinder, 5.10d).
Ég man ekki eftir einni einustu boltuðu leið og þær eru án efa eitthvað megabega því þetta er dótaklifurmekka og boltun illa séð nema í akkerum. Eitthvað búlder þarna en ég prófaði það ekki.

Mæli með þessu, þó ekki sé nema til að koma sem túristi og sjá dalinn og horfa á bigwall liðið á El Cap þegar fer að skyggja.

Miður til lok maí er sennilega í það síðasta til að klifra þarna upp á hitann að gera. Menn eru aðallega að klifra á Toulomne Meadows á sumrin. Minnir að maður keyri í gegnum það þegar maður fer niður í Yosemite gegnum Tioga Pass austan frá (ekki San Fran megin s.s.). Þekki þetta þó ekki vel.