Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Boltun klifurleiða – fræðsluefni › Re: Re: Boltun klifurleiða – fræðsluefni
20. apríl, 2012 at 20:45
#57693

Meðlimur
Ég er nú ekki endilega sammála því sem sagt er um heit-galvaniseraða bolta og ryðfríar hengjur enda er tæringin sem sýnd er á myndinni ekki vegna mismunandi spennu-raðar efnana heldur vegna þess að zinkið hefur marist af og endinn á boltanum hitnað þegar hann var barinn inn. Róinn, boltinn og skrúfgangurinn eru ótærð enda varin zinki. Svona bolta/hengju samsetning hefur í flestum tilfellum enst í yfir 20 ár sem ætti að vera sá tími sem boltar eru endurkoðaðir og yfirfarnir hvort sem þeir eru ryðfríir eða ekki.