Re: Re: BANFF

Home Umræður Umræður Almennt BANFF Re: Re: BANFF

#57752
1811843029
Meðlimur

Það er leitt að þú sért ósáttur Himmi.

Þú spyrð hvort það hafi ekkert verið spáð í hvaða dagar yrðu fyrir valinu. Svarið veistu sjálfur, stjórnin ræddi þetta fram og til baka og vó kosti og galla. Það er ýmislegt sem spilar inní, sumt sem ekki einu sinni stjórn Isalp ræður yfir eins og frídagar, afhending efnis frá Kanada, dagskrá bíó paradísar og margt fleira.

Þú ert áreiðanlega ekki sá eini sem ert að bísnast en það er alveg sama hvaða dagsetning verður fyrir valinu, hún hentar aldrei öllum. Vissulega er frídagur á fimmtudaginn og margir að halda til fjalla, en það eru pottþétt líka margir sem verða í bænum og taka Banff fegins hendi.

Það er mjög mikil vinna að láta svona viðburð verða að veruleika, það er allt saman unnið í sjálfboðavinnu auðvitað. Einmitt núna sitja nokkrir klúbbfélagar með sveittann skallann að undirbúa hátíðina þannig hún verði sem best og mest.

Ég er viss um að smá jákvæð hvatning er einmitt það sem þeir þurfa til að klára lokasprettinn.

Atli Páls.

Ps. Forsalan gengur mjög vel og stefnir í frábæra mætingu. Tryggið ykkur miða sem ætlið að mæta!