Reply To: Ísklifuraðstæður 2016-2017

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifuraðstæður 2016-2017 Reply To: Ísklifuraðstæður 2016-2017

#62750
Jonni
Keymaster

Fórum þrír í Tvíburagil í gær, ég Matteo og Ásgeir. Efri fossinn er nokkuð bakaður en vel klifranlegur, betri ís hægramegin í honum. Það varð nokkuð heitt í gilinu í gær, svo að neðri fossinn hrundi á meðan að við vorum þarna.
Ólympíska félagið nær alveg niður og Matteo leiddi það alveg á ís, sennilega í fyrsta skipti sem það er gert. Ef það helst kalt gætu 55° hugsanlega komist í gott stand, grunar að þær séu frekar bakaðar eins og er.