Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifuraðstæður 2025-2026 › Reply To: Ísklifuraðstæður 2025-2026
19. janúar, 2026 at 10:43
#101135
Participant
16. janúar fór ég, Palli og Stefán Karl inn Glymsgil og klfruðum Hlyn/Þrym, byrjuðum fyrstu spönnina í Hlyn og hliðruðum svo yfir í Þrym. Við áttum alls ekki von á því að það væri fært inn gilið þannig að það kom skemmtilega á óvart, ætli það hafi ekki verið frost á þessum slóðum í ca. 2 vikur fyrir þennan dag. Aðstæður voru svolítið spes, mikill ís í Hlyn og Þrym en Glymur sjálfur ekki klifranlegur. Eins voru Hvalur 1-3 þunnir. En þetta er væntanlega allt dottið úr aðstæðum núna.
Myndir: https://www.facebook.com/media/set/?vanity=ottoingith&set=a.10163363117557264