Penelópa
Leiðin liggur þétt upp við hinn gamla Ódysseif sem var boltuð í leiðslu með handbor.
Fyrstu 6 spannirnar voru boltaðar um aldamót og fengu þá nafnið Saurgat satans. Þegar
sú leið var boltuð var klifrað upp 7 spannir Ódysseifs með bensínborvél og bolta og
leiðin boltuð á einum degi.
2026 var boltum bætt í fyrstu spannirnar og spannir 7-13 boltaðar, með þeirri viðbót er
leiðin fullmótuð og hefur fengið nafnið Penelópa. Leiðin er löng og alvarleg, veður
getur oft verið snúið og í efri spönnum gjarnan þoka. Mikilvægt er að líða vel í 5.10
klifri þar sem klifra þarf nokkuð yfir næsta bolta. Mikið er af góðu klifri í góðu bergi en
í leiðinni eru líka kaflar af lausu bergi og brölti upp grasrennur í spönnum 7-9.
Mikilvægt er að vera í góðu sambandi við Ómar landeiganda og ef teymi hyggjast
keyra yfir sandinn að gera það í samráði við hann.
Útbúnaður:
Tvær 60m línur
12-15 tvistar (eftir því hvernig teymi tengir spannir) og slingar til að lengja í.
1 vinur fyrir fingrasprungu.
Leiðarlýsing
0 – Aðkomuspönn. 2 boltar
Gengið er upp eftir klettabeltinu vestan við nesta hluta fjallsins. Fljótlega birtist
grasbrekka/sylla á hægri hönd. Best er að græja sig þarna og brölta svo upp
brekkuna. 2 boltar eru í brekkunni sem er þó ekki mjög brött.
Spönn 1 – Dyravörðurinn. 35m, 5.9, 9 boltar
Klifrað upp undir lítið þak, yfir það og nokkurn veginn beint upp þar til komið er á
góða syllu. Þegar þangað er komið er horft beint upp í Ódysseif, þar sést í ryðgaðan
bolta. Ekki klifra hér upp heldur hliðra til hægri. Fixuð lína er yfir í rétt akkeri. Hægt er
að klifra alla leið þangað og tryggja þaðan ef lengt er vel í tvist úr fyrra akkeri.
Spönn 2 – Sportspönnin. 5.10a, 28m, 10 boltar
Klifrað upp vegg undir áberandi þaki og upp hægramegin við þakið. Þar tekur líklega
á móti þér múkki sem hefur það huggulegt þegar þú klárar síðasta krúxið.
Spönn 3 – Útsýnishornið. 5.9, 22m, 7 boltar.
Klifrað upp vegginn beint úr stansi, erfiðast neðst og njótið útsýnisins. Eftir það er
klifrið létt upp stalla.
Gráu slöbin spannir 4-6.
Hér er hægt að tengja spannir, fjórða spönn er stutt og
þægilegt að tengja t.d. 4-5. Allar spannir frábært jafnvægisklifur og ekki eitt einasta
góða tak í öllum spönnunum.
Spönn 4 – 5.10b, 19m, 6 boltar
Góður stans
Spönn 5 – 5.10b, 15m, 4 boltar
Hangandi stans
Spönn 6 – 5.9, 30m, 11 boltar
Frábær sylla
Spönn 7 – Göngutúrinn – 5.1, 53m, 7 boltar
Skellið ykkur í gönguskó. Passið að klifra ekki beint upp eftir spönn 6, þar eru boltar
frá spönn sem boltuð var í leiðslu en liggur út í tómið. Búið er að taka neðsta augað
úr þeirri spönn.
Hér er hliðrað beint til vesturs eftir lítilli syllu þar til komið er í grasbrekku sem gengið
er upp. Akkeri er fljótlega eftir að komið er í brekkuna en það er einungis hugsað til
að auðvelda sig úr leiðinni, haldið áfram eftir fyrsta akkerið.
Spönn 8 – Borvélatangó- 5.9, 54m 7 boltar
Spönn sem var að megninu til boltuð í leiðslu. Hliðrað er til vinstri eftir akkerið eftir
léttum slöbum. Gott að lengja í fyrsta bolta. Komið er upp að grasskoru og haldið upp
að áberandi vegg í horni. Skemmtilegt jafnvægisklifur síðustu 15m.
Spönn 9 – Söguslóðinn – 5.8 , 25m 7 nýjir boltar en hægt að klippa líka í 2 bolta úr
gamla Ódysseif
Leiðin liggur beint upp úr stans, fyrst brölt, svo upp áberandi klöpp ská til hægri í
hvarf frá tryggjara. Þar sést í gamlan bolta úr Ódysseif sem hægt er að klippa í ef
sjálfstraustið er lítið en hann myndar drag á línu. Laust berg gengur í gegnum allt
fjallið á þessum kafla og búið er að koma fyrir línubút yfir um 2m kafla, klifrið er þó
ekki erfitt yfir þann hluta. Gengið að lokum eftir syllu síðustu 5 m til hægri í akkeri.
Hér er gott að hugsa til frumfara Ódysseifs sem klifruðu þetta með handbor og
boltuðu í leiðslu.
Spönn 10 – Dodda slab – 5.8, 50m, 11 boltar.
Gæðaklifur upp endalausa veggi.
Spönn 11 – Grjótglíman – 5.10d eða 5.10a A0, 30m , 10 boltar
Upp létt slöb þar til komið er í bratt klifur. Óheppilega langt er á milli bolta þar og
dottið á syllu ef klúðrað. Þar er þó lítil fingrasprunga sem hægt er að tryggja með
náttúrulegum tryggingum. Þegar leiðin var frumfarin voru klifrarar ekki með
dótatryggingar og toguðu sig yfir þær hreyfingar A0 frá bolta í þann næsta til að
forðast fall á syllu. Það var gert af klifrara sem er 187cm og steig hátt í sling og
líklega erfitt fyrir styttri klifrara. Ef aidað er með sprungunni væri gráðan C1. Nú er
föst hneta í sprungunni en ráðlegt að hafa einn lítinn vin með í för til að tryggja eða
auðvelda aidið
Passa þarf að fylgja boltalínu í lok spannar sem leiðir mann í bratt klifur og krefjandi
lokahreyfingar því vinstramegin eru lausir stórir steinar.
Spönn 12 – Sólarsyllan – 5.10 A0 15m, 7 boltar
Hlykkjast upp haft, tekur langa hliðrun til vinstri, þar eru erfiðar hreyfingar upp bratt
yfirhang. Við frumför var togað í bolta þarna sem stutt er á milli í erfiðasta hluta. Með
þeim stíl er leiðin 5.10 A0. Haftið er þó alls ekki ókleift og bíður þess að fyrsta teymi
fríklifri. Munið að lengja í tvistum þar sem þar á við annars er mikið drag.
Spönn 13 – Útgangsspönn 5.3, 20m 3 boltar
Létt klifur og ánægjulegt. Beint upp úr stansi upp á hrygginn. Þegar þangað er komið
þá þarf að hækka sig örlítið og halda um 10m inn á fjallið til norðurs. Akkerið sést því
ekki við fyrstu sýn. Örvæntið ekki, það er þarna. 3 boltar, tveir nýjir með sighringjum
og einn gamall bolti frá Ódysseifstímum til að minna okkur öll á jaxlana sem komu
fyrst.
Niðurleið
- Síga niður af hryggnum og niður í mosaslöbin undir fjallinu. Ganga þaðan um 10m
upp eftir klettaveggnum að hryggnum. Þar er einn bolti sem hægt er að klippa í . - Haldið eftir hryggnum en haldið ykkur um 10m undir brúninni. Gengið er í um 40-50m
og þar er bolti með 2m hvítri línu í til að reyna gera greinilegri. - Haldið sömu stefnu til norðurs yfir smá hrygg/haft þaðan er bratt niður. Komið er
ofarlega í skoru og efst í henni er bolti á lágum vegg sem vísar til suðurs og er í
ökklahæð. Erfitt gæti verið að draga þetta sig. Við frumför þá kom síðasti maður
gangandi í línu þennan kafla en þá er ekki mælt með því að detta. - Bolti neðst í skáskorunni á hægri veggnum (norður) um 50 m sig
- Sigið úr skáskorunni. Og gengið eftir klettavegg. Horfið niður í brekkuna neðan við
klettavegginn. Þar er sléttur steinn með einum bolta og gulum sling. 50m - Bolti vinstamegin við skoru. 55m
- Fyrsta akkeri í leiðinni Eris. Sigið þaðan niður í brekku.
| Crag | Vestrahorn |
| Sector | Kambhorn |
| Type | Alpine |
| Markings |






