Bifröst, III 5.9 220m

Leiðin liggur upp klettahrygg undir höfuðvegg Kambhorns.

  1. spönn: 5.6, 20m, 5 boltar
  2. spönn: 5.5, 30m, 5 boltar
  3. spönn: 5.7, 20m, 8 boltar
  4. spönn: 5.9, 50m, 10 boltar
  5. spönn: 50m óboltuð tengispönn
  6. spönn: 5.7, 50m, 8 boltar

Við frumferð var leiðin að stórum hluta blaut og rök og eru því góðar líkur á að gráðurnar séu ekki alveg réttar og ætti að taka þeim með fyrirvara.

Leiðarlýsing: Leiðin býður upp á alvöru fjallaklifurfíling og reynir oft meira á útsjónarsemi og vandvirka fótavinnu heldur en að toga fast. Leiðin einkennist af blönduðu klifri þar sem brattari kaflar og mosagrónar syllur skiptast á. Leiðin er fullboltuð og var hreinsuð eftir bestu getu en þó geta enn verið lausir steinar og grip sem klifrarar skulu vera vakandi fyrir.

  1. spönn hefst á hliðrun til hægri eftir stöllum. Hér geta verið laus grip í byrjun, sérstaklega ef hliðrað er of ofarlega. Við fjórða bolta er hætt að hliðra og klifið beint í góðu bergi upp uns komið er upp á mosagróna syllu. Þaðan er gengið inn að ljósum kletti í stans.
  2. Úr stansi er hliðrað til hægri og farið upp á litla syllu. Athugið að hér var/er Fýlshreiður. Af syllunni er klifrað upp stuttan en brattan vegg á góðum gripum sem verður svo aflíðandi og endar á stuttri mosagróinni syllu. Af henni er gengið inn að stuttu hafti og eftir það tekur við þægilegur stans.
  3. Jafnvægisklifur beint af augum upp úr stansi þar til komið er að lítilli syllu. Þaðan er farið upp hægra megin, upp að syllu sem á hvíla nokkrir steinar sem sitja fastir undir mikli bjargi þar á syllunni. Klifið upp á þá syllu vistra megin við bjargið og upp á það. Þaðan er komið á litla syllu þar sem við stutt haft (2m) í lélegu bergi þar sem fátt er um tök og reynir á jafnvægiskúnstir. Þaðan er gengið inn að stansi.
  4. Spönnin er þrískipt og verður mögulega settur inn stans eftir brattasta kaflann. Klifið upp um 15m brattan vegg þar sem reynir jafnt á kraft, jafnvægi og fótavinnu. Úr honum er komið upp á litla syllu og eftir það léttist klifrið til muna (5.3-5.4) en berggæðin minnka einnig. Af þessum sökum er talsvert lengra milli bolta, en gott berg til boltunar fannst aðeins á örfáum stöðum. Klifið er nokkuð beint af augum um 20m og loks eru um 15m boltalausir (ágætt til klifurst en ekki til boltunar) inn að stansi.
  5. Gengið er upp mosagróna brekku úr stansi og þaðan hliðrað inn að loka hryggnum.
  6. Úr stansi er klifið beint upp stutt haft og þaðan beygt til hægri. Leiðin eltir þaðan hrygginn nálægt hægri brúninni þar sem skiptist á léttara klifur í lakara bergi og stífara klifur í betra bergi.

Aðkoma: Farið upp frá Bretabúðunum upp brekku og undir fyrstu klettaveggina (þar er Saurgat Satans á horninu). Héðan er mælt með því að fólk setji upp hjálma. Þaðan er haldið áfram upp og til vesturs eftir grasbrekkum undir klettaveggjunum uns komið er fyrir hornið. Þaðan er haldið áfram upp grófa skriðu og hryggurinn birtist þá fljótlega.  Þaðan geta glöggir fylgt (nokkuð ógreinilegum) slóða sem liggur fyrst yfir grófa skriðu og þaðan í hlykkjum upp heldur fastari skriðu (þá rétt vestan við hrygginn). Að endingu er hliðrað til austurs inn að neðsta hluta hryggjarins. Nokkrar litlar vörður eru á leiðinni. Áætlaður uppgöngutími er um 30-45mín.

Niðurleið: Athugið að hægt er að ganga/klöngrast úr öllum stönsum til vesturs til þess að komast úr leiðinni ef svo ber undir. Frá efsta akkeri er létt klöngur um 10m þar til komið er á topp hryggjarins sem er ávalur malarhryggur. Þaðan er farið niður til vinstri (inn að stóru veggjunum) og niður frekar lausar og varasamar skriður. Mælt er með því að fikra sig fljótlega í vestur þar sem skriðurnar eru fastari og þaðan er komið inn á sömu leið og lýst var til uppgöngu.

Crag Vestrahorn
Sector Kambhorn
Type Alpine
Markings

9 related routes

Suðurkantur – afbrigði

Blá lína á mynd

Nánast sama lína og Suðurkantur (græn), nema að hún klýfur sig til vinstri í þriðju eða fjórðu spönn og sameinast svo aftur Suðurkanti eftir tvær-þrjár spannir.

Dótaklifur

FF: Snævarr Guðmundsson og Björn Vilhjálmsson, 1992

Suðurkantur

Græn lína á mynd

Dótaklifur

FF: Snævarr Guðmundsson og Jón Geirsson 1988

Vesturveggur

Gul lína á mynd. Á talsvert sameiginlegt með Bæði Boreal og Suðurkantinum.

Fysta klifurleiðin upp á Vestrahornið. Það tók þá félaga um tvær og hálfa klukkustund að klífa leiðina sem er 450m löng. Að þeirra sögn er bergið með því besta sem þeir hafa kynnst og stórkostlegt til klifurs. Að þeirra mati var leiðin af IV. gráðu en erfiðast (crux) 5.6 (V/V+). Fyrstu 80-100 metrarnir voru erfiðastir.

FF: Snævarr Guðmundsson og Jón Geirsson, 21. ágúst 1981

Dirty Rainbow

Fyrsta spönn er boltuð af Árna Stefáni Halldorsen, Eyþóri Konráðssyni og Jónasi G. Sigurðssyni.

Flottur veggur rétt austan megin (hægri) við Saurgat Satans, gæti orðið frábær sportklifursector. Draumurinn er að láta Dirty Rainbow verða að fjölspanna leið, eins langt og mögulegt er að komast þarna upp, svo að hún er leið í vinnslu en fyrsta spönnin er tilbúin og er frábær sportklifur spönn.

(more…)

Saurgat Satans

Boltuð fjölspannaleið, ágætlega langt á milli bolta á sumum stöðum, slabb allan tíman.

Aðkoma: Gengið beint upp brekkuna frá tjaldsvæðinu, ætti ekki að taka mikið meira en korter. Best er svo að síga niður leiðina aftur þar sem hún fer ekki alveg upp á topp, muna að setja hnúta á endana á línunni!

Búnaður: 12-15 tvistar ætti að vera feiki nóg, ekki vitlaust að kippa 2-3 hnetum með, ekki nauðsinlegt samt. Mælt er með því að vera með hjálm allan tíman! Nesti, lína, bakpoki, kalk, klifurskór, tryggjaradúnn og góða skapið.

(more…)

Ódyseifur

Hæð: 200m
Lengd leiðar: 400m
Tími: 6-8 tímar í klifri + tveir tímar niður
Aðkoma: 15 mín frá bíl

Útbúnaður: Léttur klettarakkur, hnetusett + 1/2 vinasett. Aðkoma er sunnan við Kambhorn, ekki hræðast blauta sanda, þeir eru harðari en sýnist…

Leiðin var unnin á árunum 1995-1998 af Guðjóni Snæ Steindórssyni og Snævarri Guðmundssyni. Einnig komu við sögu Björn Vilhjálmsson og Einar Steingrímsson auk Jóns Geirssonar en þeir tveir síðastnefndu tóku þátt þegar leiðin var klifin í heild, um verslunarmannahelgina 1998. Als voru farnar sex ferðir austur og í hverri ferð bættust ein til þrjár spannir við leiðina. Þegar upp var staðið var leiðin alls þrettán spannir. Höfðum við ekið alls um 7000km til að ljúka henni.

(more…)

Nemesis

Fyrst farin í júlí 1982 af Birni Vilhjálmssyni og Einari Steingrímssyni.

Í frumferð leiðarinnar sóló klifraði teymið upp “Gráu slöbbin”, merkt inn II, III og III. Slöbbin leiða upp á hrygg, þar sem að aðal klifurhluti Nemisis fer fram. Klifrað er austan megin við hrygginn.

Frá hryggnum er farið í skorstein og stefnt að öðru gráu slabbi við “Eyrað”. Gráa slabbið rétti lygilega úr sér þegar að því er komið og er lúmskt erfitt, líkist helst skíðastökkbretti. Er farið upp vinstra megin, inn í stóra horninu og stefnt á stóran stein, sem húkir undir stóru þaki, sem krýnir Gráa slabbið. Þaðan er haldið skáhalt út til vinstri upp á brúnina. Upp á topp er farið eftir gróf (ca 80-100m).

(more…)

Boreal

Rauð lína á mynd

Fundin boltuð og frumfarin af Guðjóni Snæ Steindórssyni og Snævarri Guðmundssyni.

Fyrst klifruð í maí 2013

Aðkoman tekur um það bil 90 mín og er það brött ganga upp grýtta fjallshlíð. Grjótið er allt laust en er það stórt að gangan er ekki eins og að ganga í skriðu. Einhver teymi hafa átt í erfiðleikum með að finna leiðina, vonandi kemur myndin af góðum notum. Það á að vera blátt prússik í fyrsta bolta, það er til að gera leiðina sýnilegri ef verið er að leita af henni, það táknar ekki að leiðin sé project.

(more…)

Bifröst, III 5.9 220m

Leiðin liggur upp klettahrygg undir höfuðvegg Kambhorns.

  1. spönn: 5.6, 20m, 5 boltar
  2. spönn: 5.5, 30m, 5 boltar
  3. spönn: 5.7, 20m, 8 boltar
  4. spönn: 5.9, 50m, 10 boltar
  5. spönn: 50m óboltuð tengispönn
  6. spönn: 5.7, 50m, 8 boltar

Við frumferð var leiðin að stórum hluta blaut og rök og eru því góðar líkur á að gráðurnar séu ekki alveg réttar og ætti að taka þeim með fyrirvara.

Leiðarlýsing: Leiðin býður upp á alvöru fjallaklifurfíling og reynir oft meira á útsjónarsemi og vandvirka fótavinnu heldur en að toga fast. Leiðin einkennist af blönduðu klifri þar sem (more…)

Leave a Reply