gulli

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 1 through 25 (of 105 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: (Icelandic) ÍSALP og FÍ munu eiga Bratta saman #61887
    gulli
    Participant

    Flott að heyra að mikil vinna og pælingar hafa farið í þessa ákvörðun og persónulega efast ég ekki um að þetta er ákveðið með hagsmuni ÍSALP að leiðarljósi. Frábært. Breytir því ekki að þetta er risastór ákvörðun og nauðsynlegt að kynna hana vel og leyfa félagsmönnum að hafa skoðanir og ræða. Vonandi mæta fleiri á þann fund en hefðbundinn aðalfund ÍSALP. Hef töluverða samúð með stjórnarmeðlimum sem þurfa að standa í þessu brasi dag frá degi og eru að reyna sitt besta en lítill áhugi hjá félagsmönnum oft á tíðum sem ekki einu sinni nenna á aðalfund. Vonandi endar þetta ekki eins og BDSM félagið Samtökin 78 ….

    in reply to: Myndbandagerð Palla #58008
    gulli
    Participant

    Stofna gmail reikning? Gæti ekki verið einfaldara.

    Palli, það er kominn hlekkur á jútjúbið þitt undir Efni og Myndbönd. Þú verður samt að vera duglegur að láta vita af nýju efni á spjallinu … veit að þú ert feiminn og hógvær en láttu okkur endilega vita þegar koma inn ný vidjó! :)

    in reply to: Aðgengi að Spora #57949
    gulli
    Participant

    Það er slæmt mál ef klifrurum verður meinaður þarna aðgangur, getur verið þrælgaman að skella sér í Spora og aðkoman og lengd frá Rvík frábær. Í þau skipti sem ég hef farið þarna hefur bóndinn alltaf verið mjög vinalegur og það á reyndar við um alla þá ábúendur sem maður hefur rætt við varðandi að fá að troða aðeins á landinu þeirra.

    Er einhver hérna málkunnugur bóndanum að Fremra-Hálsi? Held það væri ráð að hafa samband við hann og fá upplýsingar um hvað veldur því að ekki var vel tekið á móti þessum aðilum og koma fram hans óskum um aðgengi rækilega hér á vefnum. Ef enginn þekki þarna til væri líklega best að e-r úr stjórn tæki þetta að sér.

    Kveðja,
    Gulli

    in reply to: Sprunguklifur #57820
    gulli
    Participant

    Finnst líklegast að hún sé orðinn hluti af baðinnréttingunni hans Sigga.

    in reply to: Sprunguklifur #57818
    gulli
    Participant

    Ég var nú einu sinni hluthafi í svona sprunguvél en arðurinn af þeirri fjárfestingu var ansi rýr.

    in reply to: Hver hefur ekki lent í þessu? #57798
    gulli
    Participant

    Manni leið ekkert of vel að horfa á þetta.

    in reply to: Stækkum klifurhúsið #57710
    gulli
    Participant

    Vonum að þess mál komist í góðan farveg!

    Minni annars á aðalfund Klifurfélags Reykjavíkur sem er einmitt í kvöld kl. 20.

    in reply to: Nýjar leiðir í Pöstunum #57709
    gulli
    Participant

    Við vorum nokkur sem klifruðum Vippuna í fyrra og mig minnir að 5.10c hafi þótt ásættanleg gráða.

    Annars má bæta því við frá Jósef að það á eftir að ganga frá akkerum í báðum leiðum. Einungis einn bolti er hvoru akkeri fyrir sig eins og er en það stendur til bóta.

    in reply to: BÍS mót í klifurhúsinu #57697
    gulli
    Participant

    Hey, hrikalega flott bís mót um helgina, vel gert allir sem komu að þessu.

    Palli, þar sem þú mættir ekki þá rúllaði Róbert þessu upp. Læt eina mynda fylgja af meistaranum.
    [attachment=444]IMG_9297.jpg[/attachment]

    in reply to: Ísfestivalsflopp #57538
    gulli
    Participant
    Smári Stefánsson wrote:
    “HVar ætlið þið að klifra? það er ekki ísarða hérna” hvað heitir hann aftur vertinn í veiðihúsinu í Breiðdal ? :)

    Súddi! Skrautlegur gaur með mjög skrautlega fortíð.

    in reply to: Aðalfundur og framboð #57466
    gulli
    Participant

    Já, hvernig lítur nýja stjórn ÍSALP út?

    in reply to: Professionals at work #57348
    gulli
    Participant

    Það er eiginlega maganð með þessa heppni. Hún virðist vera í ótrúlega ríku mæli hjá alls konar köppum sem eru úthrópaðir fyrir hitt og þetta af atvinnumönnum. Samt virðist sárasjaldan eitthvað koma fyrir, a.m.k. sem maður heyrir af.

    Kannski voru þeir að skoða þessar myndir og ákváðu að taka þetta skrefi lengra.

    in reply to: Orðsending frá uppstillinganefnd #57332
    gulli
    Participant

    Hæ, hverjir eru að fara úr stjórninni?

    in reply to: Ævintýri í Óríon #57206
    gulli
    Participant

    Voru ævintýri í Eyjafjöllum?

    in reply to: Síðan og spjallið #57205
    gulli
    Participant

    Ég breytti þessu eiginlega um leið og Steinar póstaði þessu.

    in reply to: Gufunesturninn #57146
    gulli
    Participant

    Frábært að heyra Nils.

    Er einhver leið að hafa vírinn inn í leiðslunni? Það myndi ábyggilega tryggja rennslið.

    in reply to: Í gamla daga… #57145
    gulli
    Participant

    Snilld, maður er búinn að vera bíða eftir þessu!

    in reply to: Meira af afrekum ferðaþjónustunnar #57045
    gulli
    Participant

    Meina þeir ekki að syndin sé að þarna geti ferðaþjónustuaðilar hagnast um fleiri krónur?

    in reply to: Síðan og spjallið #57036
    gulli
    Participant

    Við ættum að geta breytt þessu í hvelli Árni.

    in reply to: Síðan og spjallið #57007
    gulli
    Participant
    Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
    Gott mál. Spjallið lítur mun betur út.
    Ég hljóma núna kannski eins og algjör norn en á sínum tíma þegar Gulli og Óli mössuðu síðuna, þá fengu þeir greitt fyrir það. Eitt af fáum verkum sem ég veit til þess að hafi verið greitt fyrir í þessum félagsskap.

    kveðja.

    Það er rétt, tókum þetta að okkur fyrir minna en helming af þeim tilboðum sem stjórnin hafði fengið í verkið. Þegar upp var staðið þá vorum við búnir að eyða ekki tugum heldur hundruðum tíma í þetta.

    Skil ekki hvað þú ert að ýja að en vil að það sé á hreinu að stjórnin ætlaði að greiða fyrir uppfærslu á heimasíðunni. Við lögðum síðan síðan út fyrir vinnu 3ja aðila við útlit sem og að kaupa ákvðena módúla fyrir síðuna. Þegar upp var staðið var tímakaupið ekki hátt.

    in reply to: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a #57006
    gulli
    Participant

    Flottur Valdi, til hamingju! Hvaða leið er svo næst?

    in reply to: Minnum á myndasýningu í kvöld – Grænland og bækur #56992
    gulli
    Participant

    Hver ætlar að sýna myndir og messa yfir mannskapnum?

    in reply to: Hnappavellir uppfært #56882
    gulli
    Participant

    Glæsilegt Valdi!

    in reply to: Lausir steinar í Valshamri #56881
    gulli
    Participant

    Er það staðreynd að nauðsynlegt sé að fara í svona miklar aðgerðir? Hvað segja þeir sem hafa verið að klifra þarna síðan áður en ég fermdist? Finnst að menn ættu að stíga mjög varlega til jarðar í þessu.

    in reply to: Óhapp í Stardal #56851
    gulli
    Participant

    Arnar Jónsson wrote:

    Quote:
    Fór einmitt Svarta-Turninn um helgina og var í strompinum í annari spönn og datt næstum þegar lítið putta grip gaf sig. Munið bara að hafa varan á þar og nota hjálm ;)

    JÁ SÆLL!!! Varstu næstum því dottinn í boltaðri sportklifurleið? Vonandi ertu ekki orðinn afhuga klifri eftir þetta stórkostlega áfall.

    Góð saga samt úr Stardalnum, þar þarf klárlega að hafa varann á.

    Kveðja,
    Gulli

Viewing 25 posts - 1 through 25 (of 105 total)