2210803279

Forum Replies Created

Viewing 12 posts - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Ísaðstæður #58074
    2210803279
    Member

    Fór með Gauja að Spora á Þorláksmessu. Fossinn var alveg ber að neðan en með smá hjúp efst. Klifruðum í staðinn smá lænu sem varla nær 3.gráðu, kannski 30m, alveg syðst/austastinní hvilftinni. Yfirleitt er hún sennilega snjópökkuð en núna var þetta eini klakinn á svæðinu.

    in reply to: Öræfin #56727
    2210803279
    Member

    Fór einhver á Hnjúkinn um helgina? Er búið að snjóa yfir öskuna á toppnum/sléttunni?

    kv Stefán

    in reply to: Klifurvideo #56335
    2210803279
    Member

    Þetta var snilldar myndskeið.
    Fær mann næstum til að grafa upp klifurtútturnar og fara að mæta í klifurhúsið svo maður geti gert eitthvað næsta sumar.

    kv. Stefán

    in reply to: Aðstæður. Taka 2 #55857
    2210803279
    Member

    Ég var við Spora á sunnudagsmorgun að tala við bóndann og kíkti uppað foss í leiðinni.
    Neðst var haftið ágætt en ísinn í þrepinu var kannski 2cm og hékk bara á lyginni. Efri parturinn leit út fyrir að vera ágætur nema kannski brúnin.

    kv Stefán

    in reply to: Til að draga snjóþotu á eftir sér á gönguskíðum #55797
    2210803279
    Member

    Getur notað bakpoka með mittisól, nokkra metra af prússik og farangursteygju (eins og maður notar í bílum). Óli í Everest getur sýnt þér hvernig þægilegt er að stilla þessu upp og festa við snjóþotuna.

    in reply to: Spori og co. #55790
    2210803279
    Member

    Fiskisagan flýgur.

    Þessi saga snýst um mig og annan til. Lögðum af stað af bílastæðinu um sex leitið, hittum undir fossinum tvo sem kynntu sig sem Skarphéðin og James og voru á heimleið. Komum aftur í bílinn eftir myrkraverkin rétt um klukkan tíu.
    Það er rétt að við töluðum ekki við bóndann og skildum ekki miða eftir í bílnum með tímasetningum og símanúmerum.
    Líka þetta með að löggan var mætt og búin að sprengja dekk. Þá var kontaktinn af bílnúmerinu okkar í leikhúsi svo ekki náðist samband þá leiðina.
    En það að við höfum verið að fela okkur eitthvað og ekki viljað tala við lögguna er ekki rétt. Við komum niður fyrir ofan bæinn og í gegnum hliðin þar, leið sem liggur bakvið rúllurnar ef staðið er við bílskúrinn.

    Ég ætlað að bíða með að segja frá þessu hér á síðunni þangað til ég væri búinn að fara með konfektkassa til Steins(held hann heiti Steinn en ekki Steinar) því það var nátturulega útúrkortinu kjánalegt af okkur og illa gert gagnvart honum.

    kv Stefán Þ

    in reply to: Hver gleymdi…? #55457
    2210803279
    Member

    Fórum fjögur upp Hnappavallaleiðina á Öræfajökul og gistum tvær nætur rétt norðan við Hnjúkinn. Fórum á Þuríðartind, norðurhlíðina upp á hnjúkinn, Dyrhamar, Sveinstind og Sveinsgnýpu, Rótarfellshnjúk og Vestari Hnapp. Engin hasar en geggjað veður og sólbrunnin nef.

    in reply to: klifur í dag #54983
    2210803279
    Member

    Fórum þrír í gær í Búahamra, ætluðum í 55 gráðurnar en þar sem að enginn okkar hafði farið þar áður enduðum við í tómri vitleysu og klifruðum sennilega leið 24 í leiðarvísinum frá ’85. 60 metrar af 2.gráðu og svo kannski 10 í klett til að sneiða framhjá alltof kertuðum lokakaflanum fyrir okkar smekk.
    kv. Stefán Þ.

    in reply to: Helgarspreijið #53971
    2210803279
    Member

    Á laugardag fórum við fjórir uppá Kistufell eftir suðvestur snjólínunni og var það ágætis skemmtun en hvergi var nokkur þörf á broddum og tæplega öxum þar sem snjórinn var svona temmilega þéttur að þetta var bara eins og að labba upp stiga.
    Á sunnudag fórum við svo tveir í Spora en já hann er einmitt mjög góður þessa dagana, ísinn jafnvel betri en síðustu helgi.
    Fórum líka litla fossinn sem er þarna soldið fyrir neðan en ég veit ekki hvað hann heitir. Held að honum sé líst sem ágætis upphitun í ársritinu.

    kv. Stefán Þ.

    in reply to: Aðstæður #53872
    2210803279
    Member

    Fórum tveir í Spora á sunnudag í góðum aðstæðum, logn og næs þangað til maður var kominn uppfyrir brúnina.

    kv. Stefán Þ.

    in reply to: Bullandi snjóflóðahætta #52204
    2210803279
    Member

    Snjógirðingamál í Bláfjöllum hafa komið upp hérna nokkrum sinnum en segðu mér Árni; ef þetta er svona augljóst og ódýrt, af hverju er ekki búið að gera þetta? Hver ræður þessu eiginlega? Á ISALP ekki bara að yfirtaka Bláfjöll og redda málunum?

    in reply to: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast #51877
    2210803279
    Member

    Ég verð þarna með bivak og aldrei-notaða Scarpa skíðagönguskó nr. 45 að mig minnir, leður.

    Stefán

Viewing 12 posts - 1 through 12 (of 12 total)