0311783479

Forum Replies Created

Viewing 20 posts - 251 through 270 (of 270 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Valshamar og Bensínbor #48031
    0311783479
    Member

    Ég held að Sportklifurfélagið eigi slatta af boltum og augum, hef allavegana heyrt þjóðsögur af níðþungum handfarangri fullum af augum og ankerum.
    Góður punktur með að hvetja menn til að huga að næstu kynslóðum þegar verið er að bolta þessar leiðir.
    -kv.
    Halli

    in reply to: Austurveggur Þverártindseggjar #47995
    0311783479
    Member

    Maður fyllist lotningu við að horfa á myndirnar úr þessari mögnuðu leið. Hvað skjótið þið á þetta sé í alpagráðum (ED1/2) ?

    Enn og aftur til lukku með þetta !!!

    -kv.
    Halli

    in reply to: Austurveggurinn a Þverartindsegg #47971
    0311783479
    Member

    Þetta er glæsilegt hjá ykkur Ívar og ekki leiðinlegt að sjá umfjöllunina á baksíðu moggans í morgun !!!
    -kveðja
    Halli

    in reply to: Hnefi og Pöstin #47949
    0311783479
    Member

    Ég hef nú ekki sjálfur komið í Hnefann en Bjössi Baldurs sagði mér nú einhvern tíman að boltarnir þar væru líklega orðinir ryðgaðir og varasamir.
    Pöstin er fínt svæði með boltuðum og leiðum tryggðum með dóti. Þetta eru klettar sem eru alveg við þjóðveg nr. 1 ca. 30 metra fá honum, leiðbeiningarnar í tópónum eiga að duga til að finna þetta en þegar maður er kominn að Þorvaldseyri og Seljavöllum þá er maður búinn að fara framhjá Pöstinni. Best er að koma auga á klettana þegar maður er á vesturleið eftir þjóðveginum. En ef þú ert búinn að keyra alla leiðina þangað þá munar þig ekkert um að skella þér á Hnappavelli ;o)

    Vona að þetta hjálpi þér eitthvað.
    -kveðja
    Halli

    in reply to: Ársritið #47921
    0311783479
    Member

    Ég er hjartanlega sammála Jóni Hauki með að það er skylda okkar að hlúa að klúbbnum með því að vera félagar, árgjaldið er ekkert til að vera býsnast yfir.

    in reply to: Hefur einhver farið til Kyrgyzstan? #47916
    0311783479
    Member

    ég man nú í fljótu bragði eftir grein í Climbing þar sem einhverjir ameríkanar, sem hugðust klifra einhvern stórann vegg, lentu nú heldur betur í honum kröppum þegar skæruliðar hófu skothríð á þá þar sem þeir hengu í veggnum. Stálu öllu steini léttara í “beis kamp”, þökkuðu klifrararnir sínum sæla fyrir að sleppa lifandi.
    Þannig að farðu varlega.

    in reply to: Anna Svavarsdóttir stefnir á Cho Oyu og Shisapangma #47913
    0311783479
    Member

    Ístak er greinilega að verða einn helsti bakhjarl fjallamennskunnar á Íslandi því ásamt því að strykja Önnu þá komu þeir myndarlega að uppbygging Klifurhúsins með því að leggja til tvo smiði við framkvæmdirnar og jafnframt að lána færanlegan vinnutröppu.

    in reply to: Boulder í Eyjafirði #47908
    0311783479
    Member

    Hvað eru þessi klettar við Rifkelsstaði háir, eitthvað í líkingu við Hnappavallahamrana?

    in reply to: Hafjöll og sport #47902
    0311783479
    Member

    Það má alltaf senda þennan tiltekna keppanda til að taka eingöngu þátt í “Night Party”, enda ættu meiðslin ekki að setja mark sitt á frammistöðu hans í þeirri grein.

    in reply to: Skarðsheiði: Aðstæður #47885
    0311783479
    Member

    …voru menn í Fylkisgallanum?
    ;o)

    in reply to: Síðbúnar upplýsingar um aðstæður #47874
    0311783479
    Member

    Það má finna klifurleiðir um allt Skessuhornið, þá sérstaklega NV-vegginn. Ef þig þyrstir í frekari fróðleik um klifur í Skarðsheiðinni þá er ekki vegi að gera sér ferð á opið hús hjá ísalp og fjárfesta í leiðarvísinum um Skarðsheiðinni. Hann er í ársritinu frá 1987 og væntanlega líka til í sérprenti. Svo líka bara að skella sér með klúbbnum á morgun (ef ferðin fellur ekki niður) þá færðu kannski einhvern reynslubolta til að undirvísa þig í leiðunum sem Skessuhornið býður uppá.

    -kveðja
    Halli

    in reply to: Ársritið – on the cover of the Rolling Stone #47751
    0311783479
    Member

    Hvernig væri að hafa svona “alpínista”-mynd, ættaða úr einhverjum glæsilegum fjöllum t.d. úr Andes-ævintýri þeirra Sigga, ÓlaRagga, Ívars og Rúnars?

    in reply to: Námskeið #47724
    0311783479
    Member

    Gaman að heyra að þátttaka hafi verið góð.

    in reply to: Hvannadalshnjúkur í lok febrúar #47708
    0311783479
    Member

    Hafðu samband við Einar á hofsnesi (www.hofsnes.com), hann ætti að þekkja aðstæður þarna manna best enda hefur líklega enginn komið oftar þangað en hann.

    in reply to: Isalp merki #47706
    0311783479
    Member

    Sammála Himma, enda er merkið sem Valgarður Gunnarsson myndlistamaður hannaði á sínum tíma glæsilegt

    in reply to: Ísklifurfestival #47700
    0311783479
    Member

    Já góður punktur Halldór

    in reply to: Ísklifurfestival #47696
    0311783479
    Member

    Ég er sammála Ívari og Olla, sér í lagi þar sem búið er að bjóða heimsklassaklifrara til landsins þá verður kúbburinn að leggja sig í líma við að finna stað sem býður upp á verðug verkefni fyrir kappann. Þó svo að ég hafi ekki komið á neitt ofangreindra klifursvæða og hvað þá heldur að ég sé dómbær um hvað sé verðugt fyrir gestinn þá held ég að við verðum að miða útgangspunkt festivalsins við hann og hlusta á hvað okkar bestu klifrarar leggja til í þeim efnum.
    Tek undir með Ívari að fleiri tjái sig um þetta, enda á umræðusíðan að endurspegla skoðanir félagsmanna til þess sem efst er á baugi hverju sinni innan fjallmennskunar hér á landi.

    in reply to: ísklifur #47678
    0311783479
    Member

    úbbs…var ekki búinn að fatta að búið var að segja frá þessu í fréttadálkinum ;)

    in reply to: ísklifur #47677
    0311783479
    Member

    Hvernig var ísklifurferðin á laugardag? Hvert var farið og hvernig voru aðstæður?
    mbk.
    Halli

    in reply to: Ísklifur ferð Alpaklúbbsins #47673
    0311783479
    Member

    Fyrir þá sem ekki ætla með Olla í ísbíltúr á laugardaginn geta mætt í Klifurhúsið með hamar og góðaskapið þar sem ýmis verkefni bíða.
    mbk.
    Halli

Viewing 20 posts - 251 through 270 (of 270 total)