Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Haukadalur…
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
10. January, 2005 at 12:21 #45398
Robbi
ParticipantEins og kom fram hjá Ívari þá er böns af ís í Haukadal. Ég fór ásamt Sigga og Ága. Við fórum snemma á laugardags morgni og komum hem á sunnudagskvöldi. Við gistum í bændagistingu ´s Stóra-Vatnshorni fyrir aðeins 1500 kr. nóttina. Gistiaðstaðan er hreint til fyrirmyndar og allt til alls. Rúm, stofa, eldhús og sturta. Á laugardeginum klifruðum við í Svellgjá og Bæjargili. Ísinn þar var ekki góður, plasteraður og loftmikill og manni leið eins og verkamanni sem var að moka skurð þegar maður þurfti að setja inn skrúfur, því það þurfti hreinlega að moka frá og það mikið. Á sunnudeginum fósrum við í Skálagil og á bílastæðinu hittum við Jón Hauk, Palla Sveins, Guðmund dúllara og maður að nafni Ingó (held ég). Þeir voru allir í grimrandi gír og sósíalklifruðu með okkur þann daginn. Ísinn inni í Skálagili er mjög góður og nóg að gera. Gaman væri ef fleiri hefðu látið sjá sig.
Robbi10. January, 2005 at 12:41 #49279Anonymous
InactiveHvaða leiðir voru klifraðar?
10. January, 2005 at 13:16 #492802806763069
MemberOlli þú verður nú að fara að komast út að klifra, það er ekki hollt að lifa lífinu svona í gegnum aðra!
Minnir mig á gifta gaurinn sem ég var með í skólanum og vildi fá ævintýri helgarinnar í minnstu smáatriðum, hann hafði reyndar ekki áhuga þegar ég fór að klifra.
10. January, 2005 at 13:45 #49281Anonymous
InactiveÍvar minn ertu ekki að fylgjast með. Ég var í Hval II um helgina og bara hafði mjög gaman af góðri leið og frábærum félagsskap. Ég hélt að þú hefðir verið einn af hvatamönnumum fyrir því að fólk segði frá klifri helgarinnar og hvernig aðstæður eru. Ég reyni að lýsa aðstæðum í gilinu eins og ég get.
Klifurkveðjur (sérstaklega til Ívars grimma)10. January, 2005 at 14:34 #492822806763069
MemberSorry, tek þetta aftur. Vanda lesturinn betur næst og ber Hardcore kveðju þína.
Talandi um kveðjur þá bað Ant að heilsa þér og allri fjölskyldunni, hann býr núna í köldum sendiferðabíl í Cham og skiptir tíma sínum á milli þess að breyta púðri í mógúla og passa uppá að einhver Sænsk ljóska hafi það nú gott.
10. January, 2005 at 14:41 #49283Anonymous
InactiveTakk fyrir kærlega, er hann þá fallinn fyrir holdinu????
10. January, 2005 at 16:21 #492842806763069
MemberVið erum allir veikir!
Þó ég sé auðvitað bólusettur þá tíðkast bólusetningar víst ekki í Ástralíu við þessu ákveðna vandamáli.
10. January, 2005 at 17:46 #492851704704009
MemberEr virkilega ekki nema einn einasti félagi sem hefur sett myndir frá helginni inn á á Síður félaga eftir þessa frábæru helgi?
Einn einasti.
Það hlýtur að vera eðlileg skýring á þessu því ekki eru menn að skilja myndavélarnar eftir heima. Líklegra þykir mér að það sé einhver leiðinda flöskuháls á leiðinni úr myndasafninu og inn á Síður félaga. Það er vonandi að unnt verði að halda námskeið í Skútuvoginum þannig að menn læri þetta á einni kvöldstund (þótt ekki sé það svo flókið – en eitthvað er það) og geri vefinn að sínum miðli sínum. Það er í raun ótrúlegt hvað fáir eru á Síðum félaga.
10. January, 2005 at 18:00 #49286Robbi
Participantmyndir úr Haukadal eru væntanlegar á næstunni.
Robbi10. January, 2005 at 20:37 #49287Anonymous
InactiveHugsanleg skýring er einnig að birtan er ansi stutt þannig að skilyrði til myndatöku eru ekki eins góð eins og seinna á vertíðinni.
10. January, 2005 at 22:42 #492881704704009
MemberÉg held nú að það sé ekki myndatakan sjálf sem er vandinn, heldur kannski þröskuldar á leiðinni að koma þeim á vefinn. Þetta er nokkuð sem stjórn klúbbsins þarf að hjálpa upp á með.
10. January, 2005 at 22:48 #492892502614709
ParticipantÞetta er svolítið fráhrindandi ef maður er lítill tölvukall. Ég var reyndar orðinn svo leiður á microsoft og skítaforritinu explorer að ég skipti yfir í Firefox (.com og þú losnar við 95% af öllu bullinu) og vefurinn okkar styður það ekki – en þetta er nú bara léleg afsökun…..
11. January, 2005 at 19:29 #49290Siggi Tommi
ParticipantÞar sem ég er ca. 10x fljótari að gera netta html síðu en setja dótið inn á mínar síður, þá er hér komin 22 mynda síðu úr Haukadal.
http://www.rds.is/siggi/myndir/haukadalur.htmNjótið…
12. January, 2005 at 15:32 #49291Stefán Örn
ParticipantSmellti inn nokkrum myndum frá Glymsgili, þær eru hér => http://gallery.askur.org/album268
13. January, 2005 at 09:58 #492922806763069
MemberFrábært Steppó, skemmti mér sérstaklega yfir myndum og myndatextum sem vörðuðu Sigga Skarp. Frábær árangur að draga hann með í ísklifur. Bjútífúl!
“Örugglega massa púður í fjöllunum, afhverju fór ég ekki á skíð” snild!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.