Reply To: Ísklifuraðstæður 2019-2020

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifuraðstæður 2019-2020 Reply To: Ísklifuraðstæður 2019-2020

#69463
Otto Ingi
Participant

Ég og Jonni fórum í Tríó í Eilífsdal á laugardaginn. Spikfeitar aðstæður en hægra afbrigðið vafasamt vegna þess að þar hrynur reglulega niður snjór og annað góðgæti.
Ekki fært eða að minnsta kosti íllfært að keyra inn dalinn.
Persónulega myndi ég gefa leiðunum innst í Eilífsdal smá meiri tíma. Mikill snjór í leiðunum og eflaust snjóflóðahætta í aðkomunni.