Reply To: Ísklifuraðstæður 2019-2020

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifuraðstæður 2019-2020 Reply To: Ísklifuraðstæður 2019-2020

#68609
Jonni
Keymaster

Ég, Bergur, Binni og Doddi fórum í Grafarfoss í dag. Öll afbrygði eru vel fær (nema WI 5 kertið), góður þykkur ís, engin skel nema alveg í kverkinni og nánast enginn snjór í leiðinni.

Granni er í toppaðstæðum og ég hef sjaldan séð leiðina jafn þægilega til að toppa uppúr.

Vonandi helst þetta fínt þrátt fyrir rigninguna sem er í gangi núna.