Earl grey M 7

Leið númer C4.

Mixað (hreint) afbrigði af Íste. GHC leiddi og hinn heimsfrægi Jeff Lowe fylgdi í kjölfarið. Leiðin var á sínum tíma erfiðasta mixklifurleið landsins.

Möguleg staðsetning Earl Grey (rauð lína)
Möguleg staðsetning Earl Grey (rauð lína). Ekki víst, vantar enn staðfestingu. Græn lína er Íste og blá er Pabbaleiðin.

FF: Guðmundur Helgi Christiansen og Jeff Lowe, 11. febrúar 1998

Klifursvæði Múlafjall
Svæði Testofan
Tegund Mixed Climbing
Merkingar

6 related routes

Bestur vetur M 4+

Leið númer C12.

Byrjar í skoru sem leiðir upp í snúið slabb. Auðveldari lokakafli.

FF: Matteo Meucci og Halldór Fannar, apríl 2017, M 4+ 20m

Earl grey M 7

Leið númer C4.

Mixað (hreint) afbrigði af Íste. GHC leiddi og hinn heimsfrægi Jeff Lowe fylgdi í kjölfarið. Leiðin var á sínum tíma erfiðasta mixklifurleið landsins.

Möguleg staðsetning Earl Grey (rauð lína)
Möguleg staðsetning Earl Grey (rauð lína). Ekki víst, vantar enn staðfestingu. Græn lína er Íste og blá er Pabbaleiðin.

FF: Guðmundur Helgi Christiansen og Jeff Lowe, 11. febrúar 1998

Apagredda M 5

Leið númer C2.

Leiðin liggur vinstra megin við hrygginn hjá Íste. Byrjar í gróf (klettum) hægra megin og undir ískertinu, hliðrar síðan upp og til vinstri utan á áberandi nefi í bergi, þangað til hægt er að ná upp í kertið. Þaðan á lóðréttum ís upp á brún.

FF: Guðmundur Tómasson og Páll Sveinsson, febrúar 1997

Örverpið M 4+

Leið númer C11.

Mix leið fyrri hluta veturs en verður svo pjúra ísleið þegar að tekur að líða á veturinn, WI 3/4

FF: Óþekkt

 

Frumburðurinn M 4+

Leið númer C10

Mix leið fyrri hluta veturs en verður svo pjúra ísleið þegar að tekur að líða á veturinn, WI 3/4

FF: Óþekkt

 

Múlakaffi M 7+

Leið númer C7.

Næsta leið hægra megin við Mömmuleiðina (byrjar í áberandi yfirhangi) og stór mosasylla klýfur leiðina fyrir miðju.

Mjög bratt klifur upp fyrstu 3 boltana með desperate klippingu í bolta 2. Eftir 5 bolta er komið á breiða mosasyllu sem gengið er upp. Þaðan tekur við tæknilegt jafnvægisklifur með löngum hreyfingum á milli lítilla kanta. Leiðin endar í dularfullum breiðum skorstein sem snúið er að komast upp í. Fylgja skorsteininum upp í létt brölt og akkerið er á vinstri veggnum fyrir neðan toppinn (áberandi horn sem liggur upp af megin veggnum).

Fjöldi bolta: 11, +2 boltar í akkeri rétt fyrir neðan brún, vinstra megin við gilskorninginn þegar komið er upp úr leiðinni.
ATH: það þarf 70m línu til að ná upp og niður rétt eins og í Mömmuleiðinni.

FF.: Róbert Halldórsson, 14. nóv 2015.

Comments

  1. Ég hef lengi átt erfitt með að átta mig á því hvar þessi leið liggur nákvæmlega, spurning hvort eitthvað af fróðara fólkinu hér geti staðsett leiðina?
    Í gær skoðuðum við allavega vegginn og kertin hægra megin við Íste, og ég klifraði þar einu leiðina sem virtist vera tryggjanleg í dóti á tiltölulega heilbrigðan hátt (ég bætti við mynd hér af leiðinni eins og hún var í gær). Sú leið er í það minnsta mjög skemmtileg og nokkuð líkamlega strembin,byrjar í sprungu bak við kertin og hliðrar svo út á dinglumdangl sem hægt er að klifra upp í helli bak við Íste sem býður upp á Lazyboy hvíld. Þaðan er nokkurra metra hliðrun út til hægri með vandasömum tryggingum á veggnum bak við enn stærra dinglumdangl, og þaðan er svo klifrað upp og út á dinglumdanglið, en upp úr því sameinast hún Íste. Ef fólk treystir sér ekki í það, tókst mér að brjóta gat í gegnum sjálft íste, svo ef klifrari er með minna mitti en BD Vector hjálmur, þá ætti hann að geta beilaðu úr leiðinni og troðið sér út á íste.
    En ef þetta er Earl grey er möguleiki að leiðin sé eitthvað auðveldari í þessum aðstæðum, það væri gaman að heyra hvað fólk veit um leiðina.
    Í það minnsta var það grjóthart hjá Helga að spóla upp þennan vegg beint af augum á sínum tíma!

Skildu eftir svar