Home › Umræður › Umræður › Almennt › Frétt og grein › Re: Re: Frétt og grein
14. janúar, 2011 at 17:19
#56184

Meðlimur
Þó lítið hafi snjóað sunnan heiða þá er alveg ástæða til að vera á varðbergi. Víða er að finna gamlan glerharðan snjó og svellbunka. Mikill skafrenningur var í gær þannig að töluvert snjómagn getur hafa safnast í gil og hvilftir. Nýlegur snjór getur því víða setið á flughálu undirlagi. Slíkt efni þolir átroðning illa.
Kv. Árni Alf.