Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Valshamar bíó.
- This topic is empty.
 
- 
		HöfundurSvör
 - 
		
			
				
1. apríl, 2008 at 16:19 #45343
2005774349MeðlimurKvikmyndagerðamennirnir vinir mínir Elli og Jói Massi ætla að taka upp eltingarleiks atriði í landi sumarbústaðabyggðarinnar Valshamars. Þeir
báðu mig um að athuga hvort ég þekkti klifrara sem gætu verið að klifra þar frá fjögur í dag og eins lengi og birta endist. Klifrararnir eiga að vera hluti af eðlilegum bakgrunni myndarinnar. Helst vantar eins og hann sagði“ klifrara sem líta út fyrir að vera í björgunarsveit og kunni skil á sínu fagi“. Það verða einhverjar veitingar þarna uppfrá og þeir sem mæta
fá nafn sitt í kretitlista myndarinnar.HRG.
1. apríl, 2008 at 16:44 #52622
0808794749Meðlimureeeehhh…. er ég að missa af því að hlaupa 1. apríl?
1. apríl, 2008 at 17:17 #52623
2806763069MeðlimurSem sagt að vera í rauðum tex-galla í 20°hita, með legghlýfarnar utan-yfir í klifurbelti á jafnsléttu og með hjálm.
Í beltinu eru svo 20 læstar karabínur, 3 tegundir af sigtólum (þar af tvær áttur) og um fimm langir 6mm breiðir slingar sem hafa verið vandlega gerðir upp í hekluhnút og hanga niður á ökla. Reyndurstu mennirnir þekkjast auðvitað af 3 júmmurum sem líka eru á beltinu.Ef menn vilja svo vera verulega flottir og „pró“ þá er auðvitað að skella á sig skíðagleraugum og vera með höfuðljós á hjálminum þrátt fyrir að það sé hábjartur dagur og hvorki snjór né vindur!
Ætti ekki að vera vandamál að finna nokkra svona, það er víst alveg nóg til!
Fyrirfram sorry, ég bara réð ekki við mína dökku hlið!
Hardcore
 - 
		HöfundurSvör
 
- You must be logged in to reply to this topic.