
Verið velkomin á Aðalfund ÍSALP 2026.
Fundurinn verður haldinn sal Veðurstofunnar á Bústaðarvegi 7. Að sjálfsögðu verða fljótandi veigar í boði líkt og fyrri ár!
Verkefni aðalfundar eru:
- Kosning fundarstjóra sem síðan skipar fundarritara.
- Skýrsla stjórnar.
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar, undirritaðir af tveimur skoðunarmönnum.
- Lagabreytingar.
- Kjör formanns Ísalp og meðstjórnenda.
- Kjör uppstillingarnefndar.
- Kjör tveggja skoðunarmanna ársreikninga.
- Ákvörðun árgjalds næsta árs.
- Önnur mál.
Það eru laus sæti í stjórn og biðjum við áhugasama að hafa samband við uppstillingarnefnd, en í henni eru Elísabet Thea Kristjánsdóttir, Arnar Daði Bjarnason og Erla Guðný Helgadóttir. Framboð skulu hafa borist uppstillingarnefnd (arnardadi1999@gmail.com) fyrir miðnætti 23. september en einnig er heimilt að bjóða sig fram í lausar stöður ef einhverjar eru á aðalfundi.
Kosið verður um eftirfarandi sæti í stjórn félagsins:
- Formaður
- Tveir meðstjórnendur til tveggja ára
- Tveir meðstjórnendur til eins árs
Til upplýsinga gefa núverandi formaður og aðrir stjórnarmenn ennþá kost á sér til áframhaldandi starfa. Atkvæðisbær og kjörgeng eru meðlimir ÍSALP, þ.e. þau sem greitt hafa árgjald.
Í lok fundar ætlar Ólafur Þór að segja okkur frá klifri og ævintýrum í Malaví og Kenya! Ekki missa af því.
Sjáumst á Aðalfundinum 24. september!