Villingadalur

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Villingadalur

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46935
    Robbi
    Participant

    Svo við höldum nú áfram með umræðu síðustu þráða þá fórum við Ágúst ekki inn í Villingadal til að bouldera.
    Við lögðum í hann á laugardagsmorgunn og ætluðum inn í Eilífsdal. Þegar við vorum komnir áleiðis inn dalinn og skoðuðum leiðirnar í kíki sáum við aað enginn ís var á svæðinu, einfarinn íslaus, tjaldsúlurnar mjög kertaðar og regnhlífar efst í þilinu. Við áváðum þá að gera bíltúr úr deginum og keyrðum framhjá Flugugili, þar sem var smá ís efst í Óríon, múlafjalli þar sem enga örðu af ís var að sjá. Fyrst við vorum komnir svona langt var alveg eins gott að kíkja á Villingadal.
    Okkur til mikillar lukku voru bara ágætis aðstæður þarna (þótt ísinn hafi verið mjög þunnur á köflum og lsatti af mixi) tókst okkur að bögglast upp einhverja 2ja spanna leið í dalnum. Massa vetraraðstæður með snjófjúki, roki og öllum pakkanum.
    Fór enginn annars að klifra um helgina ? Hvað um Þórisjökul…fór einhver þangað? Eitthvað að gerast fyrir norðan?
    Robbi

    #50022
    2005774349
    Meðlimur

    Voruð þið í vettlingum?
    Alvöru naglar hefðu farið að búldera berhentir í snjófjúkinu, orðið heitt í hamsi og rifið sig úr að ofan.
    Þannig gera naglar.

    HRG

    #50023

    Voru virkilega ekki fleiri sem fóru út og kíktu í ísklifur um helgina? Var enginn ís fyrir vestan?

    #50024
    1210853809
    Meðlimur

    Sæll Hjalti, eru menn eitthvad ad missa sig. Tu verdur bara ad fara ad beita orkunni meira i klifrinu eda er kannski ad fædast nyr hardcore ?

    #50025
    Páll Sveinsson
    Participant

    Snillingar.
    Svona á að gera það.
    Leiðir sem lítið eru spennandi þegar þær eru hálfsoknar í snjó geta svo verið frábær skemtun í þunnum aðstæðum.

    Verst að hafa ekki lagt frá sér fjarstýringuna og komið sér út úr hús.

    kv.
    Palli

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.