Viðgerðir á skel – þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði

Home Umræður Umræður Almennt Viðgerðir á skel – þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47477
    1908803629
    Participant

    Ég er sérstaklega lunkinn við að gera gat á Cintamani buxurnar mínar og hefur nú tekist að gera samtals fjögur göt á annars frekar nýlegar brækur.

    Þrátt fyrir þetta virka buxurnar skrambi vel en myndu væntanlega virka betur ef bætt yrði í götin.

    Lumar einhver á húskonuráðum um hvernig best er að laga svona lagað? Mér hefur dottið í hug hjólabætur og vatnshelt teip en grunar að það séu til ívið skynsamlegri lausnir en það…

    Allar ábendingar vel þegnar.

    #54126
    Freyr Ingi
    Participant

    Duct teip að innan og utan straujað á og kantskorið!

    FIB

    #54127
    Goli
    Meðlimur

    Hef oft gert við svona með duct teipi að innanverðu og Aquasure gúi að utanverðu, verður fullkomlega vatnshelt en lítur aðeins út eins og einhver hafi misst „barnaefni“ á fatnaðinn.

    #54128

    Er sjálfur að gera tilraun með svart tau-teip með plasthúð frá Tesa að mig minnir sem ég fékk í Brynju á Laugavegi. Lúkkar allavega betur en hvíta íþróttateipið :) Virðist tolla ágætlega.

    Ég straujaði ekki en þvoði efnið vel og sprittaði áður en ég límdi á. Þannig ættiru að losna við alla fitu og annað ógeð. Passaðu bara að sprittið gufi alveg upp áður en þú heldur áfram. Ef þetta gengur ekki þá prófar maður að strauja.

    Ef götin eru stór er vissara að teipa báðumegin, en ég setti nú bara innaná ef þau voru agnarsmá.

    Duct teipið virkar líka vel en er bara ekki eins camo og þetta svarta.

    – Tribal

    #54129
    Goli
    Meðlimur
    #54130
    2006753399
    Meðlimur

    Sammála Gólanum, úretan að utan, duckteip að innan. Úretanið gengur undir ýmsum nöfnum eins og aquasure ofl. – oft ódýrast að kaupa það í veiðibúllum þar sem það gengur undir nafninu „vöðlulím“ og kemur í mun stærri túbum en í útivistarbúðum.

    #54131
    2808714359
    Meðlimur

    ég setti duckteip á buxurnar mínar og fékk svo saumavélina lánaða hjá mömmu og saumaði kantana svo þeir losni ekki.

    En þetta eru að vísu hræbillegar draslbuxur, veit ekki hvort ég mundi gera sauma í fínar goretexbuxur.

    #54132

    Glædan… mamma þín hefur saumað þetta fyrir þig ;)

    #54133
    Robbi
    Participant

    Duck tape er subbulegt. Það er hægt að kaupa nylonbætur með lími aftaná. Tjaslaði jakkanum mínum saman með svoleiðis og það hefur haldið í nokkur ár. Límir bót utan og innan á. Alveg pottþétt viðgerð.

    robbi

    #54134
    Robbi
    Participant

    Gleymdi að segja að nylonbæturnar fást í saumabúðum.

    robbi

    #54135
    1908803629
    Participant

    Kærar þakkir fyrir glimmrandi góða svörun. Nú er bara að prófa og sjá hvernig virkar.

    #54136
    2006753399
    Meðlimur

    Dökkteip er ekkert subbulegt nafni, -dökkteip er lífsstíll.

    #54137

    Dökkteip virkar fínt. Ef maður setur nóg af lími undir kanntana í teipinu og þá verður þetta allt í lagi.

    #54138
    2808714359
    Meðlimur

    Dökkteip er frábært, virkar í öllum sportum.

    Og Björgvin ég saumaði sko sjálfur, mömmu og eiginkonunni til mikillar undrunar.

    #54139
    2502835399
    Meðlimur

    Dökkteipið er málið! Ég á einhverjar rosa fínar gore-tex bætur keyptar í ameríkunni og aldrei notað þær þar sem dökkteiðið er að gera sitt. Ég bætti buxurnar mínar í ferð til bráðabirða, c.a. 1 1/2 ár síðan, kanntskar bút og hitaði örlítið svo með prímusnum og smellti svo yfir gatið að innan og utna (stórt gat), bótin er enn á sínum stað.

15 umræða - 1 til 15 (af 15)
  • You must be logged in to reply to this topic.