Myndakvöld m. Peter Habeler

Home Umræður Umræður Almennt Myndakvöld m. Peter Habeler

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46581
    1402734069
    Meðlimur

    SKÍ ætlar að beita sér fyrir því að fá Peter Habeler upp á klakann í vetur til að segja verðandi skíðakennurum til til samræmis við nýjar kennsluaðferðir sem teknar hafa verið upp eftir Austurríkismönnum.

    Nú er karl nokkuð vel að sér í fjallamennsku og hefur verið viðloðandi bransann í nokkuð mörg ár. Hann býður upp á 1.5 klst. fyrirlestur, með um 200 myndum, skv. heimasíðu hans, http://www.habeler.com.
    Fyrir þá sem ekki vita var hann, ásamt Reinhold Messner, fyrstur til að klífa Everest ás súrefnis auk þess sem þeir klifu Eiger og Matterhorn á afar skömmum tímum.

    Spurningin er hvort við viljum fá karl til að halda fyrirlestur og kíkka á myndir hjá honum?

    Kv.
    Böbbi

    #47650
    1812734299
    Meðlimur

    Ekki spurning! Flottur kall!

    #47651
    3110665799
    Meðlimur

    Græja þetta endilega, bara hressandi svona í vetrarleysisdrunganum!!

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • You must be logged in to reply to this topic.