Leifur Örn og Hallgrímur í Kyrgyzstan

Home Umræður Umræður Almennt Leifur Örn og Hallgrímur í Kyrgyzstan

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44566
    2802693959
    Meðlimur

    Sælir Ísalp félagar.
    Nú þegar yngri armur ísalpara hefur nýlokið skemmtilegum fjallatúr til Pakistan langar mig að benda á áhugaverðan túr Íslenskra fjallaleiðsögumanna til Kyrgyzstan, þar sem Leifur Örn og Hallgrímur freista þess að ganga á Lenin tind (Peak Lenin) sem teygjir sig upp í 7.134 metra hæð.
    Í dag hringdi Leifur Örn úr gervihnattasíma úr búðum eitt í 4.200 metra hæð en þar höfðu þeir haldið kyrru fyrir í dag vegna snjóa og svolítils slappleika.
    Daglegir pistlar eru á vefsíðu Útiveru http://www.utivera.is
    Lifið heil.
    Jón Gauti

1 umræða (af 1)
  • You must be logged in to reply to this topic.