Kaup á fjallaskíðaskóm

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Kaup á fjallaskíðaskóm

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46391
    1506774169
    Meðlimur

    Hvar er best að kaupa fjallaskíðaskó eins og Skarpa. Einnig langar mig að vita hvað skíðin mín þurfa að vera breið til að nota Dynafit bindingar? Get nefnilega fengið þær að utan en skíðin sem ég á eru bara 65 mm breið.

    #52410
    Jokull
    Meðlimur

    Fjallakofinn í Hafnarfirði flytur inn Scarpa fjallaskíðaskó og bíður oft á tíðum sambærileg verð við það sem menn eru að fá í gegnum netið frá útlandinu. Halldór í fjallakofanum er afar hjálplegur við sérpantanir og hefur mikla reynslu og þekkingu á fjallskíðaútbúnaði hvers konar.

    Ég hef sjálfur verið á Scarpa Spirit 3 síðustu tvo vetur og þeir eru bestu fjallaskíðaskór sem ég hef prófað. Er búin að nota þá einhverja 150+ daga og þeir halda stífleika vel og eru mjög þægilegir til göngu.

    Ég nota Scarpa Tornado í heli ski vinnunni hér í Kanada og þeir eru einnig að koma mjög vel út en ég myndi samt ekki mæla með þeim í fjallaskíðun þar sem að þeir eru alltof stífir fyrir mikla uppgöngu.

    Þú getur sett Dynafit bindingar á hvaða skíði sem er.
    Ef þú tekur Dynafit með bremsum sem ég mæli með nema þú viljir ofur léttan pakka að þá er eina spurningin hvaða bremsubreidd þú velur. Þú getur skoðað það á Dynafit vefnum.

    65mm mitti á skíðum til fjallaskíðunar er frekar lítið en eins og maðurinn sagði að þá er þetta víst allt spurning um hver stendur á plönkunum hverju sinni.

    Fjallakveðja frá Kanada

    Jökull

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.