Helvítis fokking fokk í Tvíburagili

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Helvítis fokking fokk í Tvíburagili

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46028
    AB
    Participant

    Við Sissi fórum í Tvíburagilið í dag til að skoða möguleika á fleiri leiðum.

    Klettarnir þar sem fyrir eru Ólympíska félagið og Síamstvíburinn voru á góðri leið með að verða íslausir. Engar leiðir í aðstæðum þar. Eftir smá pælingar um mixleiðir framtíðarinnar kíktum við út fyrir hornið til að sjá hvort þar mætti finna eitthvað áhugavert.

    Þar var ein lína sem leit ágætlega út. Verst að hún var akkúrat hægra megin við neðri Tvíburafossinn sem var að mestu rennandi foss eftir hlýindi undangenginna daga. Sissi fórnaði sér í hlutverk tryggjarans með epískum afleiðingum, enda klæddur í softshell. Þar sem leiðin okkar hefst inni í hálfgerðri skoru truflaði bleytan ekki leiðsluna að ráði.

    Úr varð leiðin Helvítis fokking fokk. Hún er tryggð með dóti (jess, Ívar!). Þetta er bærilegasta leið þótt gæðin séu töluvert meiri í Ólympíska og Síamstvíburanum.

    Myndavélin gleymdist í bílnum svo við bjóðum einungis upp á símamyndir í skráningu leiðarinnar: http://isalp.is/route.php?op=l&t=1

    Ég hef ekki hugmynd um hvað verður um þessa leið þegar aðstæður eru almennilegar, þ.e. nægur ís. Kannski hverfur hún alveg. Ævintýrið var þó þess virði.

    Kveðja,

    AB

    P.S.

    Við sáum ekki betur en að Nálaraugað og 55°N væru í þolanlegum aðstæðum.

    #53485
    Siggi Tommi
    Participant

    Já, fokkings fokk er það víst.
    Við Jökull Bergmann ætluðum að þenja testósterónið í Ólafsfjarðarmúla í dag en það svæði býður upp á 20-50 leiðir á bilinu WI3 upp í eitthvað massíft (WI6 alla vega skilst mér) af lengd 50-100m.
    Nú eftir hlýindin sem allir eru svo ánægðir með hafði flestum leiðum skolað út í Íshafið svo ekki urðu nein stórræði framkvæmd. Kíktum yfir í Ólafsfjörð og beyond en þar var fátt um fína drætti. Enduðum því um hádegið á prýðilegri rómantískri fjörugöngu að skoða aðgengilegasta hluta Múlans (muna að vera ekk þarna á háflóði). Eftir suicidal drulluklifur og nesti var ákveðið að fara í einu línuna á þessu svæði sem ekki var að flysjast af klettunum og varð úr prýðisskemmtun í góðum ís og ekki svo góðu grjóti.
    Afraksturinn varð leiðin „Hart í bak“ (ef JB mótmælir ekki) og fær hún gráðuna WI4 (20m bratt og 10m brölt í ís) og svo 30m D4 (drulluspíru-viðbjóðs af slatta alvarleika en aðallega ófögnuði samt).
    Vonandi að fleiri leiðir verði til þarna þegar frystir aftur.

    #53486
    2806763069
    Meðlimur

    Gott mál með nýja dótaleið – en ef menn claima nýja leið sem krefst bolta trygginga verða menn líka að sjá til þess að hún sé boltuð! Við fyrsta tækifæri! Ekki satt!

    Annars ánægjuleg þróun og örugglega margir til í eina góða fimmu til að starta mix-ferlinum. Verst með Fokkings fukking veðrið!

    #53487
    AB
    Participant

    Vóvóvó, rólegur Ívar! Ég er rétt að klára að melta hangikjötið svo verður Ólympíska félagið boltað. Ég rétt höndlaði þetta í dag. Kjötsviminn gæti slævt dómgreind mína og ég myndi kannski óvart bolta Síamstvíburann! Er þá ekki betra að bíða aðeins?!?



    Ég setti inn nokkrar símamyndir til viðbótar:

    http://picasaweb.google.com/andribjarnason/HelvTisFokkingFokkTvBuragiliDes2008#

    Kveðja,

    AB

    #53488
    Sissi
    Moderator

    Ívar þú verður að athuga líka að þetta er ekki bara onsight dótaleið, heldur er hún leidd á ósamstæðum öxum OG kaffivélin í Select var biluð.

    Þannig að við væntum þess að þetta verði ekki klifrað í síðri stíl, dót / sans samstæðar axir / sans kaffi ;)

    Siz

    #53489
    2806763069
    Meðlimur

    ok, what ever!

    #53490
    Sissi
    Moderator

    Æi bara grín, allir vinir og allt það.

    Heyriði, nú er 9 stiga hiti á mælinum fyrir utan gluggann hjá mér, á þetta að vera eitthvað grín? Hver ætlar að fá Hálfdán til að laga þetta?

    Sissi

7 umræða - 1 til 7 (af 7)
  • You must be logged in to reply to this topic.