Haustkveðja að sunnan

Home Umræður Umræður Klettaklifur Haustkveðja að sunnan

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46926
    Gummi St
    Participant

    Langaði bara að senda á ykkur kveðju, við Óðinn og Lárus félagi okkar erum á Kalymnos að klifra þessa vikuna. Hér sést ekkert ský á himni, 25-33 stiga hiti og ljúf hafgola.

    Setti 2 myndir á netið fyrir áhugasama:
    http://www.flickr.com/photos/gummistori/

    mbkv,
    Gummi St.

    #55591
    Gummi St
    Participant

    Þessi staður er frábær, fyrir þá sem þekkja til erum við búnir að klifra aðeins á Ahri, tókum Thetis 6b sem er ein mesta snilldar leið hérna og tókum þar líka nokkrar auðveldari.

    Á Kasteli tókum við Pillar of the sea 6a+ eftir léttari upphitun.

    Í dag vorum við í Symblegades rocks sem er frábært svæði, tókum Phineas 5c, Drama 6a og eina aðra 6b sem við rétt slefuðum upp. Enduðum svo í þrem fínum leiðum á sama stað gráðaðar frá 5b – 6a.

    Erum búnir að komast að þeirri vísindalegu niðurstöðu að okkar limit sé svoldið stökkið frá 6a í 6b hérna en ætlum að reyna að push’a okkur uppí 6c áður en við flýjum burt…

    Á morgun er planið að fara í Odyssey og Grande Grotta og reyna við fleiri gamla fjendur sem stoppuðu okkur af hérna 2007.

    #55592
    1908803629
    Participant

    Hrikalega flott og alls ekki svekkjandi að lesa um þetta, verandi fastur í íslenska hversdagsleikanum…

    En ef þið eruð ekki að deep water soloa þá veit ég ekki hvort það taki þessu nokkuð ,-)

    #55594
    Skabbi
    Participant

    Gaman að fá að fylgjast með þessu strákar, góða skemmtun!

    Allez!

    Skabbi

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.