Fyrir helgina

Home Umræður Umræður Almennt Fyrir helgina

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45774
    1108755689
    Meðlimur

    Veit einhver hvernig um er að litast í Grafarfossinum um þessar mundir?

    #52179
    Skabbi
    Participant

    Grafarfossinn er vafalaust kominn í þokkaleg klakabönd. Ég myndi samt fara varlega í að hjóla í orgínalinn, mín reynsla af honum er aðallega kertaður ís og klakabrynjaður snjór sem gerir hann pínu snúinn.

    Sissi benti á annan foss í þræði um daginn sem mig langar að benda þér sérstaklega á. Það er fossinn Spori, ofarlega í Kjósarskarði. Frábær leið fyrir ekki-svo-langt komna, feitur og fínn eftir smá frost.

    Þú keyrir Mosfellsheiðina að afleggjaranum niður í Kjós (hjá Stífilsdalsvatni), niður í Kjósina og beygir inn að fyrsta bænum á vinstri hönd, Fremrihálsi. Getur lagt á hlaðinu, bankað uppá og látið vita af þér áður en þú heldur lengra.

    Síðan er gengið upp túnin alveg og útfyrir þau (til austurs) þangað til komið er að lækjarsprænu (10 min. gangur). Eftir gott frost er 8-10 metra íshaft neðarlega í læknum sem þú getur hitað upp á. Annars fylgir þú bara læknum alla leið upp þangað til þú kemur í stóra hvelfingu sem kölluð er Kórinn. Spori er stærsti fossinn í Kórnum en þar eru líka nokkrir minni 2. – 3. gráðu fossar.

    Góða skemmtun um helgina.

    Allez!

    Skabbi

    #52180
    1108755689
    Meðlimur

    Glæsilegt….takk fyrir þetta

    #52181
    Smári
    Participant

    hljómar skemmtilega.

    Auglýsi eftir félaga í Spora.

    Hægt að ná í mig í síma 8625614

    Smári

    #52182
    Skabbi
    Participant

    Mynd af Spora í boði Sizzler:

    http://gallery.askur.org/main.php?g2_itemId=158375

    Allez!

    Skabbi

    #52183
    AB
    Participant

    Við Eyþór klifruðum Spora í dag. Minna var af ís en við bjuggumst við, en fossinn er þó vel fær og ísinn afbragðsgóður til klifurs. Leiðin er vafalítið brattari núna en í venjulegum „feitum“ aðstæðum.

    Kveðja,

    AB

6 umræða - 1 til 6 (af 6)
  • You must be logged in to reply to this topic.