Re: svar: Kirkjufell á Snæfellsnesi?

Home Umræður Umræður Almennt Kirkjufell á Snæfellsnesi? Re: svar: Kirkjufell á Snæfellsnesi?

#52889

Fór þarna með Skabba einn veturinn. Gaman að fara þarna upp. Það eru kaðlar þarna á nokkrum stöðum sem hægt er að nota til að styðjast við. Mætti samt alveg fara að endurnýja eitthvað af þessu. Þegar maður kom upp á topp eftir að hafa tosað sig upp síðasta kaðalinn þá kom í ljós haugur af gömlum köðlum og drasli sem allt er bundið um stóran stein. Útúr haugnum lá svo þessi sem er núna í notkun.

Að sumarlagi þarf alveg örugglega ekki neitt af græjum. Menn með lágmarksreynslu í svona brölti ættu ekki að vera í neinum vandræðum með þetta.

Mæli með pizzunum á Kaffi 59, sérstaklega með piparosti :)