17. apríl, 2008 at 10:59
#52674
Sissi
Moderator
Jæja, hvað fannst mönnum skemmtilegast?
Fílaði gaddinn, djöfull er hann hress. Je booojjjjjj.
Kajakar ágætir, hjólagaurinn sæmilegur og fékk í magann að horfa á stóned sólóklifur.
Telemark powder áttur með knúsi og sleik í endann var skrýtin og samhengislaus. Teiknimyndin með krákunum, var einhver fjallatenging í henni?
En alltaf mega gaman, ég held að þó að það væri sýnd 27 dresses þætti manni samt gaman að fara í bíó með fullt af skemmtilegu fólki.
Eru einhverjir svona hellar hérna á klakanum, kannski hægt að lengja sísonið eitthvað?
Siz