Otto Ingi

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 1 through 25 (of 63 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Stóra gráðunarmálið #83629
    Otto Ingi
    Participant

    Mér finnst þetta ósanngjarnt, margir hækkuðu um erfiðustu leiðslur við þessar breytingar en þeir sem hafa farið erlendis á “super soft” svæði græddu bara ekki neitt. Mér finnst að við ættum að miða við “Super soft” svæði og ná almennilegri hækkun á gráðum, þá græða kanski fleiri gráðuhækkun á því að sitja í sófanum.

    Á sama árinu þá onsight-aði ég 7b á Kalimnos en eyddi mörgum dögum í að klára Leikið á als oddi sem er 7a+ samkvæmt hefbundnum töflum, 7b samkæmt “super sandbagged” töflunni. Þetta ætti klárlega að vera 7c samkvæmt þessari reynslu 😀

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2021-22 #78425
    Otto Ingi
    Participant

    Fórum Ýring í gær í flottum aðstæðum. Gátum byrjað alveg í neðsta hafti og klifruðum upp á topp. Það var minna af ís norðanmegin í dalnum heldur en ég hafði búist við, mögulega einhver vatnsskortur, mýrin frosin eða eitthvað, verður kanski orðið flott næstu helgi.
    Myndir hér

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2021-22 #77707
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Baldur, Palli og Siggi Tommi fórum Þilið í Eilífsdal 27.12.2021.
    Ágætt færi til að jeppast inn dalinn ef menn treysta sér í það, að minnsta kosti rúmlega hálfan dalinn þar sem við týndum slóðanum. Smá viðvörun, það er búið að ýta upp grjóthrúgu á veginum mjög snemma, það er ástæða fyrir því, áin hefur greinilega farið þarna yfir og þarna er frosið 30-50 cm djúpt vatn, vel hægt að festa sig þar (tala af reynslu). Maður þarf að læðast meðfram girðingunni aðeins fjær ánni, eiginlega ekki slóði samt.
    Labbið inn eftir var fínt, enginn snjór í dalnum og snjórinn í aðkomubrekkunni var grjótharður og engin snjóflóðahætta akkúrat núna.
    Klifrið var alveg upp á tíu og Þilið gaf allt það besta. Flottur ís og hengjan í toppinn var vel hörð.
    Einfarinn, allar tjaldsúlurnar (ekki tjaldið) og Þilið allt í flottum aðstæðum

    Myndir í opnu facebook albúmi hér

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2020-21 #72631
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Palli Sveins og Siggi Tommi fórum Þrym í Glymsgili á sunnudaginn (31.01.20221). Eitthvað af myndum hér

    Gilið er tæplega göngufært, en við sigum niður í gilið.

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2020-21 #72166
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Palli og Baldur fórum í Skálagil í Haukadal síðasta sunnudag. Mætti alveg vera meiri ís en engu að síður flottar aðstæður. Myndir hér

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2020-21 #71292
    Otto Ingi
    Participant

    Hæhæ,
    Ég, Baldur og Palli fórum í Múlafjall á laugardaginn. Það var gott sem enginn ís þegar við mættum en það var komin smá skán í lok dags, þetta gerist semsagt hratt þegar þetta byrjar. Miðað við veðurspánna þessa vikuna þá hef ég fulla trú á að það verði flottar mix aðstæður í múlafjalli næstu helgi.
    Hér er tengill á facebook myndasafn með myndum frá því um helgina.

    in reply to: 100 leiðir í Stardal! Hvað næst? #70141
    Otto Ingi
    Participant

    Ég held að ÍSALP ætti að beita sér fyrir því að koma Sigga inn á Alþingi 😛

    in reply to: 100 leiðir í Stardal! Hvað næst? #70024
    Otto Ingi
    Participant

    Til í fund um þessi boltamál í Stardal.

    Ég vil byrja á að segja að ég er alfarið á móti boltun klifurleiða í Stardal. Það væri eitthvað sem gæti auðveldlega farið úr böndunum auk þess sem að það myndi trufla mig sem dótaklifrara að sjá bolta innan seilingar í miðri dótaklifurleiðslu.

    Ég væri hinsvegar til í að fá boltuð akkeri í Stardal.
    – Fyrir vel valdar leiðir boltuð akkeri fyrir neðan brún þannig að hægt sé að nota þau fyrir top rope. Athuga, ég segi vel valdar leiðir, það þýðir ekki 100 top rope akkeri. Mikið af leiðum þarna henta einfaldlega ekki fyrir top-rope og þá yrðu enginn boltuð top rope-akkeri í þeim leiðum. Svo eru aðrar leiðir ekki það skemmtilegar að þær yrðu mikið top-rope-aðar, ástæðulaust að vera að klína inn tope-rope í leið sem yrði kanski klifruð einu sinni á fimm ára fresti.
    – Boltuð akkeri fyrir ofan brún, t.d. 5-10 m fyrir ofan brún. Þannig gæti eitt akkeri virkað fyrir nokkrar leiðir.

    Þetta myndi ekki trufla mig neitt sem dótaklifrara.
    Boltuð akkeri gætu laðað að minna reynda klifrara eða klifrara sem eiga ekki fullan dótarakk.
    Boltuð akkeri myndu spara mikinn tíma fyrir dótaklifrara þannig að þeir gætu dótaklifrað fleiri leiðir á einum degi.
    Boltuð akkeri myndu auka öryggið í dalnum.
    Þetta myndi auðvelda dótaklifrurum ef tryggjarinn hefur ekki áhuga/getu á að elta leiðina og hreinsa hana. Klifrarinn getur sjálfur sigið niður og hreinsað leiðina (án þess að skilja eftir dóta-akkeri uppi sem þarf síðan að sækja í lok dags).

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2019-2020 #69463
    Otto Ingi
    Participant

    Ég og Jonni fórum í Tríó í Eilífsdal á laugardaginn. Spikfeitar aðstæður en hægra afbrigðið vafasamt vegna þess að þar hrynur reglulega niður snjór og annað góðgæti.
    Ekki fært eða að minnsta kosti íllfært að keyra inn dalinn.
    Persónulega myndi ég gefa leiðunum innst í Eilífsdal smá meiri tíma. Mikill snjór í leiðunum og eflaust snjóflóðahætta í aðkomunni.

    in reply to: looking for ice-climbing partner 22.-25.2.20 #68771
    Otto Ingi
    Participant

    Hi,

    Due to unpredictable weather and conditions most locals plan their ice climbing few days in advance.

    You should post again on this thread few days before.
    You can also try this Facebook page: https://www.facebook.com/groups/263888550443951/

    in reply to: Skráning á Ísklifurfestival 2020 #68770
    Otto Ingi
    Participant

    2 nætur og kjötsúpa
    Mögulega bæti ég við þriðju nóttinni þegar veðurspá liggur fyrir.

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2019-2020 #68733
    Otto Ingi
    Participant

    Fór í Brynjudal á laugardaginn, þar er var góður slatti af ís. Ég held að hiti og rigning núna í 3-5 daga muni ekki hafa mikil áhrif á ísmagnið á þessum slóðum, þannig að ef það frystir hressilega síðar í vikunni þá myndi ég gera ráð fyrir fínum aðstæðum.
    Eitthvað af myndum á facebook

    in reply to: Hvað er að frétta? #68229
    Otto Ingi
    Participant

    Anna Svavarsdóttir var reyndar fyrsti íslendingurinn til að toppa Manaslu.
    John Snorri er fyrsti íslenski karlmaðurinn til að toppa Manaslu -> Grjóthart 😛

    in reply to: Boltaumræðan afturgengin? #68106
    Otto Ingi
    Participant

    Djöfull er ég ánægður með þennan þráð, þessu bjóst ég nú ekki við frá Sigga Sandpoka.

    Þegar kemur að Stardal þá má eflaust skipta þessum bakraddakór í tvo hópa.
    1. þeir sem vilja opna alfarið fyrir boltun í Stardal.
    2. Þeir sem vilja bolta toppakkeri eða sigakkeri á vel völdum stöðum í Stardal.

    Ég er mjög hlynntur því að bolta toppakkeri í Stardal. Ég sé nokkra kosti við það.
    1. Flýtir fyrir þannig að maður gæti eflaust klifrað fleiri leiðir í einum kvöldrúnt/dagsferð í dalinn.
    2. Auðveldar hreinsun t.d. ef tryggjarinn hefur ekki hug á að klifra leiðina.
    3. Opnar möguleika á að hinn almenni sportklifrari geti farið í ofanvaðsklifur á þessu topp klifursvæði í örskotstund frá höfuðborginni, það gæti síðan laðað fleiri klifrara út í dótaklifur. Bendi á 1 grein í lögum ÍSALP þar sem stendur “Ísalp er félag áhugamanna um fjallamennsku sem leggur áherslu á að vera sameiginlegur vettvangur fjallamanna og stuðla að vexti fjallamennsku á Íslandi.“. Ef við getum fengið fleiri til að stunda dótaklifur með þessum hætti þá myndi ég flokka það sem að við væru að stuðla að vexti fjallamennsku á íslandi.

    Þó að ég tilheyri þessum grátkór þá hef ég nú látið sjá mig töluvert í Stardal undanfarin ár. Fyrir mitt leiti þá myndi það ekki trufla upplifun mína af dótaklifri þó að það væri boltuð toppakkeri. Það væri kanski annað mál ef þetta væri fjölspanna klifur þar sem hluti af klifrinu er að finna góðan stans, nota hæfilegt magn dóti, byggja gott akkeri o.f.fr..

    Ég er mjög á móti því að það verði boltaðar klifurleiðir í Stardal. Þarna eru við einfaldlega með berg sem hentar mjög vel í dótaklifur og ég er hræddur um að ef byrjað verði að bolta leiðir þá fari það úr böndunum á nokkrum árum. Það myndi líka trufla upplifun mín mjög ef ég væri í dótaklifurleið útúrpumpaður að reyna að troða inn einhvejru dóti og sæji svo bolta í seilingsfjarlægð til hliðar.

    Það má alveg bolta toppakkeri í dótaklifurleiðum á Hnappavöllum mín vegna, sömu rök og með Stardal.
    Varðandi Fallastakkanöf, er það ekki partur af fjölspanna dótaklifri að þurfa að búa til stans? Kaupi samt alveg rökin að það sé erfitt í ljósi þess að það þarf mikið af tryggingum í sömu stærð. Hef ekki sjálfur klifrað þarna og hef engar taugar til svæðisins. Það má bolta akkeri mín vegna.

    in reply to: Ice Climbing Recommendations #67761
    Otto Ingi
    Participant

    January – February is probably the best time.
    There is a database on this web page for most of the ice climbing and mixed climbing routes that have been established in Iceland, the database even has locations pinned on a map. See http://www.isalp.is/en/category/crag
    Recommend that you take a look at the database.

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2018-2019 #67240
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Matteo og Jonni fórum Glym á sunnudaginn. Eins og Arnar segir þá er áin nokkuð vel frosin og hægt að brölta inn í botn gilsins. Leiðirnar fremst í gilinu (Krókur, Kelda o.s.fr.) litu ágætlega út, leiðirnar á leiðinni inn gildið (Hvalirnir o.s.fr.) voru þunnir. Glymur var í glimrandi fínum aðstæðum.
    Hægt að sjá myndir í opnu facebook albúmi hjá mér, https://www.facebook.com/ottoingith/media_set?set=a.10156944395367264&type=3&notif_id=1549842950710902&notif_t=feedback_reaction_generic

    in reply to: Ice conditions Esja / Mulafjall: January-February 2019 #67068
    Otto Ingi
    Participant

    Hi,

    People usually post info about condition to this thread: Ísklifuraðstæður 2018-2019
    Sólheimajökull is the closest glacier

    Þetta reddast

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2018-2019 #67066
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Baldur og Palli settum stefnuna á eyjafjöllin á laugardaginn. Greinilega of seint fyrir eyjafjöllin og sólin búin að bræða mest allan ísinn. Við settum þá stefnuna á Háafoss, færið á slóðanum að fossinum er þungt, vorum á 35″ breyttum bíl og hleyptum úr, við rétt komumst þetta með einni festu. Við klifruðum Granna í fínum aðstæðum. Eitthvað af myndum hér á facebook.

    in reply to: Búhamrar á Kjalarnesi Reykjavík. #66478
    Otto Ingi
    Participant

    Ef það er bara grasbrekka undir þessum boltum er þetta þá ekki bara úr einhverri björgunarsveitaræfingu

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2017-18 #65932
    Otto Ingi
    Participant

    Ég og Helgi Egilsson Fórum í Skessuhorn í gær.
    Flottar aðstæður í Skessuhorni, Skarðshorn leit út fyrir að vera í þynnri kanntinum, sá ekki leiðirnar í Heiðarhorni.
    Eitthvað af myndum hér á facebook.

    in reply to: Ísklifurfestival 2018 Skráning #64848
    Otto Ingi
    Participant

    Ottó Ingi Þórisson, fimmtudagskvöld til sunnudags. Verð í kvöldmat föstudag og laugardag.

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2017-18 #64660
    Otto Ingi
    Participant

    Ég, Palli og Guðjón fórum í Orion í flottum aðstæðum í dag. Myndir hér
    Fullt af ís inn í Flugugili ef menn vilja fara þangað að príla

    in reply to: Ísklifuraðstæður 2017-18 #64240
    Otto Ingi
    Participant

    Ég og Danni fórum í Spora í Kjós í gær. Lekandi var frekar þunnur en þó klifranlegur, Konudagsfoss var feitur og Spori passlegur.
    Ef það bætist í snjóinn þá fer akkerið efst líklegast á kaf, þurfti að grafa smá til að finna það.

    • This reply was modified 6 years, 3 months ago by Otto Ingi.
    in reply to: Yfirgefnar tryggingar: Safn eða sóðaskapur? #63705
    Otto Ingi
    Participant

    Að mínu mati þá ætti að fjarlæga yfirgefnar tryggingar (ef það er hægt með góðu móti) á þekktum klifursvæðum eins og í Stardal.

    Í fjölspanna ævintýraklifurleiðum þá finnst mér þessar tryggingar geti alveg fengið að halda sér, nema þær séu orðnar lausar og þjóna engum tilgangi. Annars ber ég engar sérstakar tilfinningar til fleygsins sem ég skildi einhverntíman eftir í Skarðsheiði, þannig að ef einhver fjarlægir hann þá verð ég ekkert sár.

    in reply to: (Icelandic) Ísklifuraðstæður 2016-2017 #62896
    Otto Ingi
    Participant

    Var með hóp frá HSSR á fjallamennskunámskeiði í gær. Kíktum á eftirfarandi staði.

    Brynjudalur, Þrándastaðafoss var ekki frosinn. Ýringur var mjög þunnur, að minnsta kosti fyrstu spannirnar.
    Villingadalur, Leit vel út frá veginum en það er líklega hnédjúpur snjór inn allan dalinn og aðkoman því frekar löng.
    Múlafjall, Enduðum á að fara í Múlafjall. Þar eru fínar aðstæður og flestar leiðir inni.

Viewing 25 posts - 1 through 25 (of 63 total)