Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Íslandsmeistaramótið í klettaklifri 12.apríl
- This topic is empty.
- 
		HöfundurSvör
- 
		
			
				
3. apríl, 2003 at 11:34 #46082 2003793739Meðlimur 2003793739MeðlimurÍslandsmeistaramótið í klettaklifri verður haldið laugardaginn 12. apríl í húsnæði Hjálparsveitarinnar í Rvk. 
 Þetta er stærsta klifurkeppnin á landinu og verður hin glæsilegasta.
 Aðgangur er ókeypis og veitingasala á meðan keppni stendur.Keppt verður í karla- og kvennaflokki og hefst keppninn kl. 12:00. Byrjað verður á undanúrslitum karla síðan úrslit kvenn og til að ljúka góðum degi verða úrslit í karlaflokki kl 16:00. 
 Skráning er í Klifurhúsinu.Keppendum verður boðið uppá að prófa vegginn á föstudaginn 4. apríl kl 19:00. Þar verður farið gróflega yfir fyrirkomulag keppninnar, keppnisreglur og helstu atriði í leiðslu klifri. Þeir sem vilja kynna sér keppnisreglur er bent á að hafa samband við Klifurhúsið. 
 Hringt verður í skráða keppendur fyrir föstudaginn.Uppsetning leiða er í höndum Stefáns Smárasonar og fer hún fram um næstu helgi og vikuna fyrir keppni. Keppendur mega ekki æfa í keppnisleiðum fyrir keppni. 
 Þeir sem vilja frekari æfingar í landslagsveggjum er bent á fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði.
 Klifurhúsið býður keppendum uppá leiðsögn í leiðsluklifri í húsnæði Klifurhússins.Það er von okkar að sem flestir mæti á þennan árlega viðburð klettaklifurs á Íslandi. f.h. Klifurhússins 
 Halli
- 
		HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.
